Eftirfarandi tillögur voru samþykktar á aðalfundi Sláturfélags Suðurlands svf., 30. mars 2007. 1. Tillaga stjórnar um vexti af stofnsjóði og greiðslu arðs. Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf. leggur til við aðalfund að greiddur verði 7,0% arður af B-deild stofnsjóðs, alls 13 milljónir króna og reiknaðir 7,0% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs, alls 16 milljónir. Réttur til arðs miðast við lok aðalfundardags. Greiðsludagur arðs er 27. apríl n.k. 2. Kosning stjórnar. Stjórn félagsins eftir kosningar skipa eftirtaldir: Aðalmenn: Jónas Jónsson, stjórnarformaður, kt. 221139-4109 Hallfreður Vilhjálmsson, varaformaður, kt. 031259-4449 Sigurlaug Jónsdóttir, ritari, kt. 170657-2099 Aðalsteinn Guðmundsson, kt. 010552-2069 Hreiðar Grímsson, kt. 091236-3899 Til vara: Kristinn Jónsson, kt. 020460-3939 Brynjólfur Ottesen, kt. 240860-2609 Ólafur Þorsteinn Gunnarsson, kt. 021065-2939 Björn Harðarson, kt. 011059-3769 Guðmundur Jónsson, kt. 280852-2879 3. Kosning skoðunarmanna og endurskoðenda. Löggiltur endurskoðandi: Deloitte hf., Stórhöfða 23, 110 Reykjavík. Arnór Eggertsson, löggiltur endurskoðandi og Halldór Arason, löggiltur endurskoðandi. Skoðunarmenn: Aðalmenn: Arnór Karlsson, kt. 090735-3659 Kristján Mikkelsen, kt. 110250-7119 Varaskoðunarmenn: Haraldur Sveinsson, kt. 150941-3859 Sveinbjörn Jónsson, kt. 240757-7969 3. Laun stjórnar og skoðunarmanna. Stjórnarformaður kr. 940.000,- á ári. Meðstjórnendur kr. 470.000,- á ári. Skoðunarmenn kr. 122.000,- á ári. 4. Ályktun vegna kjarnfóðurgjalds. Aðalfundur SS, haldinn, 30. mars 2007, samþykkir að skora á Landbúnaðarráðherra að fella alfarið niður kjarnfóðurgjald af innfluttum fóðurblöndum.