Í samræmi við 3. gr. reglna um viðskipti lánastofnana við Seðlabanka Íslands frá 10. desember 2004, efnir Seðlabankinn til uppboðs á endurhverfum verðbréfasamningum þriðjudaginn 10. apríl 2007, kl. 11 f.h. Uppboðið verður fastverðsuppboð, þ.e. Seðlabankinn býðst til að kaupa verðbréf sam¬kvæmt tilboðum innlánsstofnana á fastri ávöxtunarkröfu, 14,25%. Tilboð þurfa að berast alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 10. april 2007. Hægt er að senda inn tilboð með sím¬bréfi á nr. 569 9604, ef það er staðfest fyrirfram með símtali við alþjóða- og markaðssvið Seðla¬bankans (s. 569 9670/71). Um framkvæmd uppboðsins að öðru leyti og frágang viðskipta vísast til liða 3. gr. í framangreindum reglum. Niðurstaða uppboðsins verður tilkynnt kl. 13:00 þriðjudaginn 10. apríl 2007. Seðlabanki Íslands efnir einnig til uppboðs á 7 daga innstæðubréfum þriðjudaginn 10. apríl 2007 kl. 14:30 e.h. Hægt er að senda inn tilboð með símbréfi á nr. 569-9604, ef það er staðfest fyrirfram með símtali við alþjóða- og markaðssvið Seðlabankans (s. 569 9670/671). Ávöxtunarkrafa innstæðubréfa er 14,10%. Niðurstaða uppboðsins verður tilkynnt kl. 15:00 þriðjudaginn 10. apríl 2007.
Tilkynning um uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum og innstæðubréfum.
| Source: NASDAQ Iceland hf.