Pétur Pétursson, framkvæmdastjóri vátrygginga- og fjármálaþjónustu Tryggingamiðstöðvarinnar, hefur ákveðið að láta af störfum hjá félaginu. Formleg starfslok Péturs verða á næstu vikum. "Pétur hefur verið öflugur liðsmaður og unnið gott starf fyrir TM á miklum umbrotatímum. Ég vil fyrir hönd samstarfsmanna þakka honum hans drjúga framlag og óska honum velfarnar í leik og starfi," segir Óskar Magnússon, forstjóri TM.