Afkoma Nýherja í fyrsta ársfjórðungi 2007 • Hagnaður fyrsta ársfjórðungs 105 mkr. Tekjur aukast um 25% milli ára. • EBIDTA 144 mkr í ársfjórðungnum. • Nýherji kaupir Link ehf., áætlaðar árstekjur um 350 mkr. Um rekstur fyrsta árfjórðungs Tekjur Nýherja í fyrsta ársfjórðungi námu 2.389,5 mkr og jukust um 25% frá sama ársfjórðungi árið áður og er að mestu um að ræða innri vöxt. Rekstrarhagnaður af starfsemi Nýherja var 122,1 mkr, en hagnaður eftir skatta og afskriftir nam 105 mkr. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir (EBIDTA) var 144,2 mkr í ársfjórðungnum. Vörusala og tengd þjónusta jókst um 354,2 mkr eða 28% samanborið við sama ársfjórðung á síðasta ári og námu tekjur af þessum þætti 1.625,2 mkr í ársfjórðungnum. Heildartekjur af hugbúnaði, tengdri þjónustu og ráðgjöf innan dótturfélaga Nýherja námu 804,0 mkr og jukust um 20% á milli ára. Rekstrarhagnaður þessarar þjónustu var 68,3 mkr í fjórðungnum og gera áætlanir ráð fyrir að vaxandi hluti af tekjum og hagnaði Nýherja verði af þessum þáttum í starfseminni á næstu árum. Tekjur af starfsemi erlendra dótturfélaga námu 315,9 mkr í fyrsta ársfjórðungi, en tekjur hérlendis voru 2.073,4 mkr. Erlendar tekjur má rekja til starfsemi AppliCon í Danmörku, Bretlandi og Svíþjóð. Stöðugildi innan Nýherja og dótturfélaga eru samtals 386 og hefur þeim fjölgað um 28 frá áramótum, þar af 13 hjá dótturfélögum. Fjármagnsliðir Í fyrsta ársfjórðungi voru fjármunatekjur að frádregnum fjármagnsgjöldum jákvæðar um 16 mkr, en fjármagnsliðir í sama ársfjórðungi árið áður voru neikvæðir um 59,7 mkr. Mestu veldur að gengi krónunnar styrktist í ár en veiktist í fyrra. Af rekstri Nýherja Nýherji keypti öll hlutabréf í félaginu Link ehf. og er bókfærð viðskiptavild vegna kaupanna 79 mkr. Árlegar tekjur Links ehf. eru ríflega 350 mkr, en félagið er umboðs-og dreifingaraðili á vörum frá m.a. Sony, Panasonic og fleiri þekktum framleiðendum. Linkur ehf. verður rekið sem dótturfélag Nýherja og verður starfsemi þess tekin inn í reikninga félagsins frá 1. apríl. Vöxt í tekjum Nýherja má m.a. rekja til mikillar aukningar í sölu á IBM netþjónum, einkum IBM Blade lausnum og UNIX netþjónum. Þá hefur verið mikil sala á Avaya símkerfum, IBM hugbúnaði, Lenovo fartölvum og ýmsum Canon neytendavörum. Þjónusta á sviði hýsingar, alrekstrarþjónustu og hugbúnaðarráðgjafar er stöðugt vaxandi hluti tekna félagsins og var m.a. unnið að innleiðingu á alrekstrarþjónustu fyrir ASKAR Capital og BM Vallá í ársfjórðungnum. Dótturfélög Rekstur AppliCon félaganna gekk vel á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og var velta og afkoma umfram áætlanir. AppliCon A/S í Danmörku hóf í upphafi ársins stórt verkefni við uppsetningu SAP lausna hjá DONG (Danish Oil and Naturgas) auk ýmissa annarra SAP verkefna. AppliCon ehf. á Íslandi vann áfram mörg verkefni fyrir Kaupþing, meðal annars í Noregi. Einnig hófst í febrúar innleiðing á SAP fjárhags- og fjármálalausnum fyrir ASKAR Capital. Þá er unnið að ýmsum Microsoft lausnum, svo sem Microsoft CRM lausn fyrir Mastercard og Innranet og Microsoft SharePoint lausn fyrir N1. Rekstur AppliCon Ltd. í Bretlandi gengur samkvæmt áætlun og hafa sjö ráðgjafar þegar verið ráðnir þar til starfa. Í Svíþjóð tók AppliCon til starfa í upphafi ársins og hefur verið unnið að undirbúningi að rekstri og ráðningu starfsmanna í Stokkhólmi. ParX, viðskiptaráðgjöf IBM hefur ráðið til sín sex nýja ráðgjafa á fyrsta ársfjórðungi og er það gert í takti við aukin verkefni og vaxandi þarfir viðskiptavina. ParX hefur að undanförnu einkum unnið að verkefnum fyrir stærri fyrirtæki og stofnanir, meðal annars fyrir Fjarðarál, úttekt á starfsmannamálum 150 ríkisstofnana, verkefni í tengslum við atvinnuuppbyggingu sveitarfélaga og alþjóðlega þjónusturannsókn fyrir GFK vegna IKEA. Sérfræðingar ParX ehf. starfa á fjórum megin fagsviðum; fjármálum, stjórnunar- og markaðsmálum og starfsmannamálum, auk þess sem sérstakt svið er fyrir opinbera stjórnsýslu. Horfur Tekjur í fyrsta ársfjórðungi voru nokkuð umfram áætlanir og afkoma í samræmi við áætlun. Söluhorfur í öðrum ársfjórðungi eru góðar og því er gert ráð fyrir að áætlanir félagsins gangi eftir. Samþykkt stjórnar Á stjórnarfundi Nýherja hf. í dag, 24. apríl 2007, samþykkti stjórn félagsins árshlutareikning fyrsta ársfjórðungs 2007, en hann hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins. Um Nýherja Nýherji er markaðsdrifið þekkingarfyrirtæki á sviði upplýsingatækni og ráðgjafar. Hlutverk Nýherja er að skapa viðskiptavinum virðisauka með þekkingu starfsfólks á upplýsingatækni, rekstri og viðskiptavinum. Félagið er eitt öflugasta upplýsingatæknifyrirtæki landsins með víðtækt framboð af vörum, þjónustu og lausnum fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Stjórn félagsins skipa Benedikt Jóhannesson, formaður, Árni Vilhjálmsson og Guðmundur Jóh. Jónsson. Forstjóri félagsins er Þórður Sverrisson og veitir hann nánari upplýsingar í síma 569 7711 / 893 3630. Heimasíða Nýherja er www.nyherji.is.