- Ársuppgjör 2006


Ársreikningur Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2006 var tekinn til fyrri
umræðu í bæjarstjórn miðvikudaginn 25. apríl, og var honum vísað til seinni
umræðu.  Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur
fundum í sveitarstjórn og verður seinni umræðan í bæjarstjórn miðvikudaginn 9.
maí n.k. 

Rekstur ársins 2006

Samstæðureikningur Árborgar samanstendur af A-hluta og B-hluta.  Í A-hluta eru
Aðalsjóður, Eignasjóður, Þjónustustöð og Fasteignafélag Árborgar.  Í B-hluta
eru Leigubústaðir, Byggingarsjóður aldraðra, Fráveita, Vatnsveita og
Selfossveitur. Meginreglan er sú að í A-hluta flokkast þær rekstrareiningar
sveitarfélagsins sem fjármagnaðar eru að hluta eða öllu leyti með skatttekjum,
en í B-hluta flokkast þær rekstrareiningar, stofnanir og fyrirtæki sem reknar
eru sem fjárhagslega sjálfstæðar einingar og hafa lagaheimild til að innheimta
þjónustugjöld til þess að standa að fullu undir útgjöldum sínum. 

Heildartekjur eru 3.443 millj.kr. og heildarútgjöld með afskriftum en án
fjármagnsliða 3.019 millj.kr.  Að öllu samanlögðu nema heildarútgjöld með
afskriftum án fjámagnsliða 87,7% af heildartekjum A og B hluta ársreikningsins.
 Fræðslu- og uppeldismál eru umfangsmesti málaflokkur í rekstri
sveitarfélagsins, tekur til sín 1.459 millj.kr.  Sveitarfélagið Árborg er mjög
stór vinnuveitandi; greiðir um 1.595 milllj.kr. í laun og launatengd gjöld.  
Handbært fé frá rekstri eru 334,3 millj.kr., afborganir lána eru 269 millj.kr.
og nettó fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum er 1.045,7 millj.kr.  Tekin
voru ný lán á árinu alls 825 millj.kr. 

Reikningurinn sýnir jákvæð frávik miðað við endurskoðaða fjárhagsáætlun ársins
2006 sem nemur 199,7 millj.kr.  Útsvarstekjur eru 65 millj.kr. hærri en
áætlanir gerðu ráð fyrir og  þá skila tekjur frá Jöfnunarsjóði sér betur en
áætlanir gerður ráð fyrir eða um 49 millj.kr. 

Einnig er um jákvæð frávik í öðrum málaflokkum.  Í stofnunum og deildum undir
A-hluta munar mest um 15,6 millj.kr. sem félagsmálin eru undir áætlun, 50,9
millj.kr. sem fræðslumálin eru undir áætlun, hreinlætismál eru 10 millj.kr.
undir áætlun, umferðarmál um 6,7 millj.kr. undir áætlun og skipulags og
byggingarmál 29,7 millj.kr. undir áætlun.  Æskulýðs- og íþróttamál eru 5,7
millj.kr yfir áætlun, umhverfismál 4,2 millj.kr, uppreiknuð
lífeyrisskuldbinding 34,1 millj.kr. yfir áætlun, aðrir sjóðir í Aðalsjóði vega
minna.  Þá eru nettó fjármagnsliðir í Aðalsjóði jákvæðir um 15,6 millj.kr 
Eignasjóður þjónustustöð og rekstur fasteignafélags eru samtals 18 millj.kr.
yfir áætlun.  Í B-hluta skilar Fráveitan lakari afkomu sem nemur 4,9 millj.kr
en Selfossveitur skila betri afkomu sem nemur 22,3 millj.kr. 

Fjárfestingar

Fjárfestingar námu alls 1.067,1 millj.kr., sem skiptist þannig: fasteignir
750,1 millj.kr, veitu- og gatnakerfi 278,4 millj.kr. og vélar, áhöld og tæki
38,6 millj.kr. Þá var söluverð fastafjármuna 21,5 millj.kr og bókfærður
söluhagnaður 2,2 millj.kr. 

Framtíðarsýn

Mikil uppbygging hefur einkennt rekstur sveitarfélagsins síðustu ár.  Á árinu
2006 var byrjað á byggingu seinni áfanga Sunnulækjarskóla og gert ráð fyrir því
að hann verði tekinn í notkun haustið 2007.  Á árinu 2006 var einnig lokið við
byggingu nýs 6 deilda leikskóla og hafinn undirbúningur að öðrum 6 deilda
leikskóla.  Þá er verið að taka húsnæðismál Barnaskólans á Eyrarbakka og
Stokkseyri til endurskoðunar og gert ráð fyrir að hefja framkvæmdir við hann á
árinu 2007.  Áfram verður unnið að uppbyggingu fráveitu-, hitaveitu  og
kaldavatnskerfis.  Fjárfestingar næstu ára verða áfram umtalsverðar vegna
þeirrar hröðu uppbyggingar sem gert er ráð fyrir í sveitafélaginu. 

Á síðasta ári fjölgaði íbúum Árborgar um 350 eða 5%.  Gert er ráð fyrir því að
sú þróun haldi áfram enn um sinn, enda mikil uppbygging framundan.  Fjölgunin
skilar sér í auknum skatttekjum en að sama skapi aukinni þenslu í
þjónustuþáttum sveitarfélagsins s.s. skóla - og leikskólmálum.  Gert er ráð
fyrir því í áætlunum að fjölgunin hafi jákvæð áhrif á reksturinn. 

Hægt verður að nálgast ársreikninginn á heimasíðu Árborgar,
http://www.arborg.is eftir að hann hefur verið tekinn til seinni umræðu í
bæjarstjórn.

Attachments

sveitarfelagi arborg samantekinn arsreikningur 2006 .pdf