- Milestone gerir 70 milljarða króna yfirtökutilboð í sænska fjármálafyrirtækið Invik & Co


Hefur þegar tryggt sér ráðandi hlut.
 
Stjórn Invik mælir með að hluthafar taki tilboðinu.

Milestone ehf. keypti í dag ráðandi hlut í sænska fjármálafyrirtækinu Invik &
Co. AB og gerði öðrum hluthöfum jafnframt yfirtökutilboð. Heildarvirði
viðskiptanna er um 70 milljarðar íslenskra króna. Invik & Co. er
fjármálafyrirtæki með víðtæka starfsemi á sænskum trygginga- og
fjármálamarkaði, auk þess sem félagið rekur sérhæfða bankastarfsemi í
Lúxemborg. Invik & Co. er skráð í Kauphöllinni í Stokkhólmi (OMX) og stefnir
Milestone að því að taka félagið af markaði. Yfirtaka Milestone á Invik & Co.
er ein stærsta yfirtaka sem íslenskt félag hefur ráðist í. 

Með kaupum á 26% hlut í Invik & Co. hefur Milestone tryggt sér um 63% atkvæða í
félaginu og hefur jafnframt gert öðrum hluthöfum yfirtökutilboð. Stjórn
félagsins hefur mælt einróma með því að hluthafar gangi að tilboði Milestone.
Kaupin eru háð samþykki viðeigandi eftirlitsaðila. 

Milestone hefur tryggt fjármögnun kaupanna, en fjárfestingabankarnir Bear
Stearns og Morgan Stanley hafa verið Milestone til ráðgjafar við kaupin og
fyrirhugaða yfirtöku og fjármagna hluta kaupverðsins. 

Invik & Co hefur vaxið mikið á liðnum árum og starfrækir tryggingafélögin
Moderna Forsäkringar og Moderna Forsäkringar Liv sem bjóða fjölbreyttar
tryggingar á sænska markaðnum. Margvísleg tækifæri liggja í auknu samstarfi
Sjóvá, dótturfélags Milestone og þessara félaga. Innan Invik & Co. eru einnig
Assuransinvest, Banque Invik og Invik Funds, sem falla vel að starfsemi Askar
Capital, dótturfélags Milestone. 

Heildartryggingaiðgjöld samstæðunnar námu um 12 milljörðum króna á árinu 2006,
eignir í umsýslu í verðbréfasjóðum námu um 162 milljörðum króna og í
eignastýringu eru um 98 milljarðar króna. 

Kaupin marka þáttaskil í rekstri og fjárfestingum Milestone en með kaupum á
Invik & Co. verður ríflega  helmingur eigna Milestone erlendis. Milestone seldi
nýverið kjölfestuhlut sinn í Glitni banka hf. og eftir kaupin á Invik & Co. mun
vægi tryggingastarfsemi og sérhæfðrar fjármálaþjónustu aukast til muna.
Heildareignir Milestone verða um 341 milljarður króna að yfirtöku lokinni og
starfsmenn innan samstæðunnar verða um 900 talsins. 

Karl Wernersson, stjórnarformaður Milestone:
„Invik & Co fellur mjög vel að öðrum eignum Milestone. Við höfum stefnt að
sterkari stöðu á norrænum fjármálamarkaði með áherslu á tryggingastarfsemi og
sérhæfða fjármálaþjónustu. Við lítum á yfirtökuna sem einstakt tækifæri til að
skjóta styrkari stoðum undir rekstur og efnahag Milestone og treysta til muna
stöðu Sjóvá og Askar Capital. Það liggja mikil tækifæri í samþættingu og
samvinnu þessara eininga.” 


Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone:
„Milestone hefur mikla trú á stjórnendum Invik & Co., enda hefur félagið vaxið
jafnt og þétt á öllum sviðum og skilað góðum arði. Með kaupunum horfir félagið
til langs tíma og Invik & Co. verður ein af meginstoðum Milestone á næstu
árum.” 


Um Milestone
Milestone er alþjóðlegt fjárfestingafélag í einkaeigu. Í árslok 2006 námu
heildareignir félagsins 170 milljörðum króna, hagnaður samstæðunnar nam 21,4
milljörðum og arðsemi eigin fjár var 92%. Milestone leggur áherslu á
fjárfestingar í fjármálastarfsemi, tryggingastarfsemi og fasteignum, auk lyfja-
og heilbrigðisstarfsemi. Félagið er kjölfestufjárfestir í nokkrum fyrirtækjum
innan þessara kjarnasviða, þar á meðal Sjóvá og Askar Capital, auk Lyfja og
heilsu. 

- - - - - - - - - 
Nánari upplýsingar 
Karl Wernersson, stjórnarformaður Milestone, í síma +354 414 1800
Guðmundur Ólason, forstjóri Milestone, í síma +354 414 1800