- Ársreikningur 2006


Í dag 26. apríl var ársreikningur Stykkishólmbæjar 2006 tekinn til fyrri
umræðu. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á
tveimur fundum í sveitarstjórn. Seinni umræða verður 24. maí n.k. 

Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók
gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert
ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við
ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu
leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar
á grundvelli þeirra.  Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum
reikningsskilaaðferðum. 

Ársreikningur Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2006 byggir á sömu
reikningsskilaaðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur. 

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 607,973 millj. kr. samkvæmt
samanteknum ársreikningi fyrir A- bæjarsjóð og B- hluta stofnanir og fyrirtæki,
en þar af námu rekstrartekjur bæjarsjóðs 568,497 millj. kr. 

Rekstrargjöld námu 646,233 millj. Þar af námu rekstrargjöld bæjarsjóðs 552,926
millj. að meðtöldum hækkunum vegna lífeyrisskuldbindinga starfsfólks að upphæð
11,1 m.kr. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs var jákvæð um 15,6 millj.  samkvæmt
ársreikningi  en neikvæð um 38,3 millj. kr. í  samanteknum ársreikningi A og B
hluta. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2006 nam, eftir að
lífeyrisskuldbindingar höfðu verið dregnar frá, 381,3 millj. kr. samkvæmt
efnahagsreikningi, en þar af nam eigið fé bæjarsjóðs 582,9 millj. kr. 

Rekstrarafkoma bæjarsjóðs Stykkishólmbæjar er jákvæð um 15,6 millj. kr.
Meginástæða eru fyrir þessu er: 

•Auknar greiðslur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem námu um 55 milljónum meira
en áætlun gerði ráð fyrir, en á móti kom hærri launagreiðslur m.a. vegna nýrra
samninga við leikaskólakennara, auk hækkun lífeyrisskuldbindinga starfsfólks um
11,1 milljónir kr. Lífeyrisskuldbindingar Stykkishólmsbæjar eru 155,8 milljónir
samkvæmt útreikningum tryggingastærðfræðings. 
	

Rekstarafkoma samantekins ársreiknings A og B hluta er
neikvæð um 38,3 millj. kr. Meginátæður eru fyrir þessu eru:

•Hallarekstur hafnarsjóðs var 11,7 millj.kr. og stafar af minni umsvifum á höfn
m.a. vegna algjörs stopp á hörpuskelveiðum sem staðið hefur yfir frá 2002. 

•Hallarekstur Fráveitu er 26,3 millj.kr. og skýrir aukin fjármagnskostnaður
vegna aukinnar verðbólgu þennan halla að mestu leiti. 
	
Það sem er jákvætt við rekstur bæjarsjóðs er að handbært fé frá rekstri er 67,9
millj.kr., ef ekki yrði farið í fjárfestingar og engin ný lán tekin, þá tæki
það ekki nema 7,9 ár að greiða upp allar skuldir bæjarsjóðs Stykkishólmsbæjar. 

Fjárfestingar voru 178 milljónir króna og vegur fjárfesting í nýjum glæsilegur
leikskóla um 145 milljónir þyngst. Auk þess voru fjárfest í íþróttamannvirkjum,
gatnagerð og geymslusvæði fyrir gáma og lausamuni. 

Álagningarhlutfall útsvars var 13,03%. Álagningarhlutfall fasteignaskatts var
0,43% á íbúðarhúsnæði. 

Álagningarhlutfall á aðrar fasteignir var 1,65%.Ársreikningurinn í heild sinni
verður birtur  á heimasíðu Stykkishólmbæjar. 

Nánari upplýsingar veitir: Þór Örn Jónsson, bæjarritari,  í síma 433-8100

Attachments

stykkisholmsbr 2006a.pdf