- Samþykkt að sameina VBS Fjárfestingarbanka og FSP undir nafni VBS Fjárfestingarbanka


Á aðalfundum VBS fjárfestingarbanka hf. og FSP hf. sem haldnir voru í dag var
samþykkt að sameina félögin undir nafni VBS fjárfestingarbanka hf. í samræmi
við samrunaáætlun frá 9. mars 2007. Samruninn er háður samþykki
Fjármálaeftirlitsins. 

Fram kom að samkvæmt drögum að rekstrarniðurstöðu sameinaðs félags á fyrstu
þremur mánuðum ársins væri hagnaður fyrir skatta um 550 mkr. og greinist hann
þannig í milljjónum króna: 


	Hreinar vaxtatekjur                            156
	Tekjur af eignarhlutum                         410
	Þóknanatekjur og aðrar rekstrartekjur          147
	Önnur rekstrargjöld                           -115
	Framlag í afskriftareiknig útlána             - 48
						
	Hagnaður fyrir skatta                          550


Ný stjórn er skipuð þeim Gísla Kjartanssyni sem jafnframt er formaður stjórnar,
Gunnari Árnasyni, Símoni Sigurpálssyni, Páli Magnússyni og Þresti Leóssyni.
Varamenn í stjórn eru Ólafur Elísson, Guðmundur Ingi Jónsson, Birgir Ómar
Haraldsson, Jón Kristjánsson og Kristinn Ágúst Ingólfsson.