Ársreikningar Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2006 var staðfestur af bæjarstjórn 3. maí 2006 við síðari umræðu. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og var fyrri umræða 26. apríl sl. Nýjar reglur um reikningsskil sveitarfélaga tóku gildi í ársbyrjun 2002 og er ársreikningurinn í samræmi við þær. Í reglunum felst að reikningsskil sveitarfélaga eru færð til samræmis við almenn reikningsskil fyrirtækja. Rekstrareiningar sveitarfélagsins skiptast í A-hluta (sveitarsjóður) og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sveitarsjóðs sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum eða aðalsjóður, eignasjóður og þjónustustöð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki/stofnanir sem fjármagnaðar eru með þjónustutekjum en þau eru: hafnarsjóður, vatnsveita, dvalar- og hjúkrunarheimili, fráveita, Funi sorpbrennslustöð og Fasteignir Ísafjarðarbæjar ehf. Ársreikningurinn ber það með sér að niðurstaða reksturs varð lakari en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins. Tekjur urðu 6 millj.kr. lægri og útgjöld 29 millj.kr. lægri. Skatttekjur urðu 1.521 millj.kr. eða 51 millj.kr. hærri en áætlað var. Laun voru 1.188 millj.kr. almennur rekstrarkostnaður 852 millj.kr., áfallnar lífeyrisskuldbindingar og afskriftir 264 millj.kr. og nettó fjármagnskostnaður 284 millj.kr. Ársreikningurinn er birtur á heimasíðu Ísafjarðarbæjar www.isafjordur.is undir slóðinni fjármálasvið/ársreikningur 2006. Nánari upplýsingar veita: Þórir Sveinsson, fjármálastjóri thorir@isafjordur.is og Védís Jóhanna Geirsdóttir, aðalbókari vedis@isafjordur.is í síma 450 8000.