Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2006 var lagður fram til fyrri umræðu í hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps mánudaginn 7. maí 2007. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn, síðari umræða verður um ársreikninginn á hreppsnefndarfundi miðvikudaginn 24. maí nk. Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2006 hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar, sem falla undir A-hlutastarfsemi sveitarfélagsins og samantekin ársreikning fyrir alla starfsemi þess þ.e. A -og B- hluta sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Til A-hluta þ.e Sveitarsjóðs, telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Hér er um að ræða aðalsjóð, en auk hans eru eignasjóður og þjónustumiðstöð Vopnafjarðarhrepps. Til B-hluta með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B- hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Hafnarsjóður, Vatnsveita, Fráveita, Félagslegar íbúðir, Leiguíbúðir, Félagsheimilið, Lyfsala , Skiphólmi ehf. og Arnarvatn ehf. Ársreikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsreglu og í samræmi við sveitarstjórnarlög, lög um ársreikninga nr. 144/1994, reglugerð um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga nr. 944/2000 og auglýsingar félagsmálaráðuneytisins um reikningsskil sveitarfélaga. Ársreikningurinn byggir í meginatriðum á sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður.