Hagnaður samstæðu SPRON 4,7 milljarðar króna eftir skatta Arðsemi eigin fjár 54% á ársgrundvelli Helstu niðurstöður úr rekstri og efnahag fyrsta ársfjórðungs 2007: • Hagnaður af rekstri SPRON samstæðunnar eftir skatta var 4.690 millj. kr. á fyrstu þremur mánuðum ársins og jókst um 318% frá sama tímabili síðasta árs. • Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 54,0% á ársgrundvelli. • Hreinar rekstrartekjur námu alls 6.714 millj. kr. sem er 203% aukning frá sama tímabili síðasta árs. • Vaxtamunur sparisjóðsins er 1,0%. • Niðurstaða efnahagsreiknings var 194.151 millj. kr. í lok mars 2007 og hafa heildareignir hækkað um 5,2% frá áramótum. • Heildarútlán til viðskiptamanna SPRON námu 134.536 millj. kr. í lok mars og hækkuðu um 4,9% frá áramótum. • Heildarinnlán SPRON námu alls 58.336 millj. kr. og hækkuðu um 3,1% frá áramótum. Innlán sem hlutfall af útlánum til viðskiptamanna námu 43%. • Eigið fé í lok mars nam 30.516 millj. kr. • Eiginfjárhlutfall (CAD) SPRON samstæðunnar í lok ársins var 11,8%. Lágmarkshlutfall samkvæmt lögum er 8,0%. Eiginfjárþáttur A er 25,8%. • Árshlutareikningurinn er birtur í samræmi við alþjóðlegar reglur um gerð samstæðureikningsskila (IFRS). Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri: „Afkoma SPRON er sterk á fyrsta ársfjórðungi og er hagnaður eftir skatta 4,7 milljarðar króna sem er næst besta afkoma SPRON á einum ársfjórðungi í 75 ára sögu fyrirtækisins. Lögð hefur verið áhersla á að fjölga afkomueiningum til þess að renna enn styrkari stoðum undir tekjustreymi fyrirtækisins og gekk rekstur dótturfélaga SPRON, Frjálsi fjárfestingarbankinn, Netbankinn og SPRON verðbréf vel á tímabilinu. Ennfremur skila hlutdeildarfélög og fjárfestingar SPRON góðri arðsemi. Eigið fé SPRON er 30,5 milljarðar króna og heildareignir samstæðunnar nema rúmlega 194 milljörðum króna. Vaxtamunur sparisjóðsins var 1,0% og lækkuðu hreinar vaxtatekjur um 17% á tímabilinu. Jafnframt voru vanskil í sögulegu lágmarki. Rekstrarhorfur félaga í samstæðu SPRON á árinu eru jákvæðar og allar forsendur til þess að rekstur SPRON haldi áfram að dafna.” Frekari upplýsingar veitir: Guðmundur Hauksson sparissjóðsstjóri Sími: 550 1200.
- 3 mánaða uppgjör 2007
| Source: SPRON