- kaupir tækni- og þjónustufyrirtækið Dansupport A/S í Óðinsvéum


Nýherji kaupir tækni- og þjónustufyrirtækið Dansupport A/S í Óðinsvéum.


•Dansupport verður með starfsemi í Óðinsvéum, Kolding og Kaupmannahöfn.

•Velta 340 m ISK og kaupverð um 190 m ISK.

•Claus Falk fyrrum framkvæmdastjóri Eltel Networks A/S verður framkvæmdastjóri
Dansupport. 


Nýherji hf. undirritaði í dag samning um kaup á fyrirtækinu Dansupport A/S í
Óðinsvéum í Danmörku. Dansupport er þjónustufyrirtæki sérhæft í uppsetningu á
tölvu-, samskipta- og símakerfum fyrir meðalstór fyrirtæki. Helstu
samstarfsaðilar Dansupport eru IBM, Avaya, Cisco og Microsoft í Danmörku. 
  
Nýherji hefur á undanförnum misserum annast fjölmörg verkefni erlendis við
uppsetningu á síma- og tölvukerfum og hafa íslenskir starfsmenn annast þau
verkefni.  Þá hefur Nýherji haft tvo fasta starfsmenn í Danmörku á liðnu ári og
munu þeir nú hefja störf hjá Dansupport A/S. 

Dansupport A/S grunnur fyrir frekari vöxt.

Tekjur Dansupport á liðnu ári voru um 340 M ISK og var EBITDA um 9 %. 
Kaupverðið er 190  M ISK og verður það fjármagnað að hluta með lánsfé, en
annars með eigin fjármögnun.  Gert ráð fyrir að kaupin á Dansupport hafi
óveruleg áhrif á afkomu Nýherja á yfirstandandi ári, því áhersla verður lögð á
áframhaldandi vöxt þess í Danmörku. 

Ný skrifstofa Dansupport A/S í Kaupmannahöfn.

Dansupport hóf upphaflega starfsemi í Óðinsvéum árið 1987 og eru starfsmenn
þess nú um 30 reyndir ráðgjafar og tæknimenn.  Dansupport veitir þjónustu á
sviði tækni- og rekstrarþjónustu upplýsingatæknikerfa, uppsetningu og rekstur
símkerfa auk hýsingarþjónustu.  Nýlega opnaði félagið skrifstofu í Kolding til
að þjóna viðskiptavinum á Jótlandi. Á næstunni verður einnig opnuð skrifstofa í
Kaupmannahöfn, þar sem áhersla verður lögð á að þjóna viðskiptavinum í
Kaupmannahöfn og annars staðar á Sjálandi. 
  
Framkvæmdastjóri Dansupport er Kenneth Rossau og mun hann verða  tæknilegur
framkvæmdastjóri á öllum starfsstöðum félagsins frá 1. júlí.  Við stöðu 
framkvæmdastjóra  tekur Claus Falk, en hann hefur á liðnum sjö árum gegnt stöðu
framkvæmdastjóra Eltel Networks Telecom A/S í Kaupmannahöfn. Claus Falk er með
háskólagráðu í verkfræði- og viðskiptafræði frá Háskólanum í Álaborg og hefur
starfað á sviði upplýsingatækni frá árinu 1990. Þá hefur Rasmus Maahr verið
ráðinn sem fjármálastjóri Dansupport, en hann var áður fjármálastjóri hjá Eltel
Networks Telecom A/S og endurskoðandi hjá KPMG í Danmörku. 

Áframhaldandi vöxtur erlendis.

Kaupin á Dansupport eru í samræmi við þá stefnu Nýherja að auka starfsemi
samstæðunnar erlendis.  Í október 2005 keypti Nýherji öll hlutabréf í
fyrirtækinu AppliCon A/S, sem er sérhæft í ráðgjöf og þjónustu við SAP hugbúnað
og hafa síðan verið stofnuð AppliCon fyrirtæki í London og Stokkhólmi. 

Starfsmenn Nýherjasamstæðunnar verða eftir kaupin um 420 og þar af um 110
starfandi erlendis. 

Nánari upplýsingar veitir Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja í síma 569-7700
/ 893-3630 eða um netfangið thordur.sverrisson@nyherji.is