Ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2006 var tekinn til fyrri umræðu af hreppsnefnd fimmtudaginn 17. maí sl. og vísað til seinni umræðu. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Seinni umræða fer fram fimmtudaginn 24. maí nk. Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess þ.e. A og B hluta, sbr. 60 gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998 Til A hluta, þ.e. sveitarsjóðs, telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessarra fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta starfsemi sveitarfélagsins eru Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Hafnarsjóður og Fræ ehf. Þann fyrsta júlí 2006 sameinuðust sveitarfélögin Þórshafnarhreppur og Skeggjastaðahreppur undir nafninu Langanesbyggð og samanstendur ársreikningur Langanesbyggðar fyrir árið 2006 af samanlögðum rekstri beggja sveitarfélaganna fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní og sameinaðs sveitarfélags fyrir tímabilið 1. júlí til 31. desember 2006. Samanburðarfjárhæðir fyrir árið 2005 eru samanlagðar fjárhæðir úr ársreikningum sveitarfélaganna tveggja. Tekjur sveitarfélagsins voru nokkuð umfram áætlun, eða 19 millj. kr. í samanteknum A og B hluta. Skýringin liggur einkum í hærri framlögum jöfnunarsjóðs en reiknað var með, m.a. vegna framlaga er tengjast sameiningu sveitarfélaganna. Hins vegar voru skatttekjur nokkru lægri en áætlað var. Að sama skapi fara útgjöld nokkuð fram úr áætlun fyrir A og B hluta, eða um 29 millj. kr. og er skýringin á því m.a. sú að ákveðinn kostnaður fylgdi sameiningunni sem ekki hefur skilað sér að öllu leyti í gegnum framlög jöfnunarsjóðs auk þess sem ekki var áætlað fyrir rekstarkostnaði vegna dótturfélagsins Fræs ehf. Samkvæmt ársreikningi var afkoma fyrir fjármagnsliði í fullu samræmi við fjárhagsáætlun í A hluta sem og fjármunamyndun rekstrar, samanber sjóðsstreymi, en frávik var heldur meira í B hluta. Frávik í B hluta koma einkum til vegna kostnaðar við rekstur Fræs ehf. Ekki var unnin fjárhagsáætlun fyrir Fræ ehf. fyrir árið 2006 vegna óvissuþátta í rekstri þess félags á sl. ári. Í fjármagnsliðum eru veruleg frávik frá fjárhagsáætlun sem skýrast annars vegar af því að stærstur hluti langtímalána sveitarfélagsins er ýmist verð- eða gengistryggður. Verðbólga ársins 2006 var nokkru hærri en spár gerðu ráð fyrir, eða í kringum 7%, og gengisþróun erlendra lána var afar óhagstæð á árinu og sér þess stað í háum fjármagnsgjöldum. Mest áhrifin koma, hins vegar, til vegna þess að B hluta fyrirtækið Fræ ehf. á 33% eignarhluta í Þórshöfn fjárfestingu ehf. sem aftur á öll hlutabréf í Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. (HÞ). Afkoma HÞ var afar slæm á árinu 2006 og nemur hlutdeild Langanesbyggðar í tapi ársins 151 millj. kr. sem kemur til gjalda meðal fjármagnsliða í rekstrarreikningi samantekins A og B hluta. Í ársbyrjun 2007 seldi Fræ ehf. eignarhlut sinn í Þórshöfn fjárfestingu ehf. til Ísfélags Vestmannaeyja hf. og er áætlaður söluhagnaður vegna þess um 164 millj. kr. eftir skatta og mun sú fjárhæð koma til tekna í ársreikningi samantekins A og B hluta Langanesbyggðar fyrir árið 2007.