2006


Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2006 er lagður fram til fyrri umræðu í
bæjarstjórn 3. maí 2007. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um
ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann aftur til
umfjöllunar í bæjarstjórn Garðabæjar 24. maí nk. 

Ársreikningur Garðabæjar árið 2006 hefur að geyma ársreikning fyrir þær
rekstrareiningar sem falla undir A-hluta starfsemi sveitarfélagsins og
samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess, þ.e.a.s. A og B-hluta, sbr.
60. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 45/1998. 

Til A-hluta, þ.e. sveitarsjóðs, telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er
fjármögnuð með skatttekjum. Hér er um að ræða Aðalsjóð, en auk hans Eignarsjóð
og Þjónustumiðstöð Garðabæjar. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð
fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins. Rekstur
B-hluta fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla
undir Bhluta starfsemi sveitarfélagsins eru Samveitur Garðabæjar og Garðahús
hf. 

Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2006 er lagður fram til fyrri umræðu í
bæjarstjórn 3. maí 2006. Niðurstaðan endurspeglar gott jafnvægi í rekstri
bæjarsjóðs. 

Samkvæmt sjóðstreymi nemur veltufé frá rekstri 795 mkr, en áætlun gerði ráð
fyrir 682 mkr. Mismunur er 113 mkr sem er 2,9% frávik m.v. heildarrekstrargjöld
sem nema 3.906 mkr. Veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum er 16,8% hjá A
hluta bæjarsjóðs Garðabæjar en þegar litið er til samstæðureiknings er veltufé
frá rekstri 19,3%. 

Heildarrekstrartekjur bæjarins nema 4.119 mkr og er það 0,5% hærri tekjur en
áætlun gerði ráð fyrir. Heildarrekstrargjöld án fjármagnsliða og afskrifta eru
3.431 m.kr. sem eru nær sömu útgjöld og áætlun gerði ráð fyrir. 

Rekstrarniðurstaðan nokkuð betri en áætlun gerðir ráð fyrir, eða 212 mkr í stað
58 mkr. Skýrist það að mestu af fjármagnsliðum en netto fjármagnskostnaður
reyndist 143 mkr lægri en áætlun gerðir ráð fyrir, sem rekja má að mestu til
góðrar ávöxtunar handbærs fjár. 

Í nánustu framtíð er ljóst að fjölgun bæjarbúa á næstu árum mun auka umfang
rekstrar og stærð efnahagsreiknings. Má þar nefna til lok framkvæmda í Sjálandi
og Akralandi auk nýrrar uppbyggingar í Urriðaholti.. 

Attachments

arsreikningur garabjar 2006.pdf garabr - frettatilkynning.pdf