- Straumborg ehf. sameinast dótturfélagi sínu


Stjórnir Straumborgar ehf., sem er með skráða víxlaflokkana SBORG 07 1019 og
SBORG 08 0521  og Norvest ehf. hafa ákveðið að sameina félögin undir nafni
Straumborgar ehf. miðað við síðustu áramót. Norvest er 100% í eigu Straumborgar
og hefur samruninn því engin áhrif á samstæðuuppgjör Straumborgar og óveruleg
en jákvæð áhrif á öryggi skuldbindinga Straumborgar þar sem eignir Norvest
verða nú í móðurfélaginu. Um er að ræða aðgerð til að einfalda skipulag
Straumborgar.