Stjórn SP-Fjármögnunar hf. hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu 6 mánuði ársins 2007. Lykiltölur úr rekstri eru þessar helstar (í millj. króna á verðlagi hvers árs): Sjá viðhengi. SP-Fjármögnun hf. er eignaleigufyrirtæki og starfar eftir lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Félagið er dótturfélag Landsbanka Íslands hf., sem á 51,0% hlutafjár, en aðrir hluthafar eru ýmsir sparisjóðir. Stærsti eignahluturinn er í eigu Byrs sparisjóðs sem á 31,87% en aðrir eiga minna en 10% hver. Árshlutareikningur SP-Fjármögnunar hf. er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) um árshlutareikninga. Rekstur SP-Fjármögnunar í samræmi við áætlanir á fyrri hluta árs 2007 Hagnaður eftir skatta nam 473 milljónum króna á fyrri hluta ársins 2007 en var 245 milljónir fyrir sama tímabil í fyrra og er það 93% hækkun. Hreinar tekjur voru 967 milljónir sem er 47% aukning frá fyrri hluta árs 2006 þegar hreinar tekjur námu 656 milljónum. Efnahagsreikningur 40 milljarðar Efnahagreikningur félagsins er lítið eitt stærri en hann var um síðustu áramót þrátt fyrir verulega aukin viðskipti. Kemur það einkum til sökum styrkingar krónunnar frá áramótum, en stór hluti útlána SP-Fjármögnunar hf. er gengisbundinn. Efnahagur félagsins fór á árinu í fyrsta sinn yfir 40 milljarða og stendur nú í 40,1 milljarði. Eigið fé SP-Fjármögnunar hf. var í júnílok kr. 3.741 milljónir. Eiginfjárhlutfall félagsins sem reiknað er samkvæmt 84. gr. laga um fjármálafyrirtæki (CAD hlutfall) er 12,5% en skv. lögum má það ekki vera lægra en 8%. Vanskilahlutföll Í lok júní 2007 námu vanskil eldri en 30 daga tæpum 0,7% af heildarútlánum og höfðu hækkað úr tæpum 0,5% frá ársbyrjun. Heildarvanskil eru í júnílok um 479 milljónir kr. en á sama tíma nam virðisrýrnunarreikningur útlána og eignaleigusamninga hins vegar tæpum 2% af heildarútlánum eða 760 milljónum króna. Afkoma SP-Fjármögnunar hf. er í samræmi við áætlanir og eru horfur mjög góðar með árið í heild sinni. Mikil aukning hefur verið í viðskiptum á árinu og eru horfur á að árið í heild verði afar hagfellt. Fyrirtækið hefur vaxið mikið með reynslumiklu og hæfu starfsfólki. Á bak við félagið eru sterkir eigendur og er SP-Fjármögnun hf. því vel í stakk búið fyrir frekari vöxt á komandi misserum. Í stjórn SP-Fjármögnunar hf. eru Þorgeir Baldursson formaður, Elín Sigfúsdóttir, Guðmundur Davíðsson, Magnús Ægir Magnússon og Ragnar Z. Guðjónsson. Framkvæmdastjóri félagsins er Kjartan Georg Gunnarsson.
2007 - Leiðrétting - Frétt birt: 2007-07-19 16:28:40
| Source: SP-Fjármögnun hf.