- framlenging samkeppnistilboðs


Stilla eignarhaldsfélag ehf. kt. 460607-0270 hefur ákveðið að framlengja
samkeppnistilboð sitt í hlutafé Vinnslustöðvarinnar hf. um fjórar vikur. Gildir
yfirtökutilboðið nú til kl. 16:00 mánudaginn 20.ágúst  2007. 

Ákvörðun um  framlengingu tilboðsfrestsins er tekin með tilliti til niðurstöðu
samanburðarmats Saga Capital fjárfestingarbanka hf. á, annars vegar,
yfirtökutilboði Eyjamanna ehf. og, hins vegar, samkeppnistilboði Stillu
eignarhaldsfélags ehf. sem stjórn Vinnslustöðvarinnar kynnti með tilkynningu
til kauphallar þann 13. júlí síðast liðinn. Er niðurstaða Saga Capital
fjárfestingarbanka hf. sú að tilboð Eyjamanna ehf. geti ekki talist sanngjarnt
gagnvart þeim hluthöfum sem því er beint að en hins vegar, sé tilboð Stillu
eignarhaldsfélags ehf. sanngjarnt gagnvart hluthöfum Vinnslustöðvarinnar hf. og
í samræmi við þá verðlagningu hlutafjár sem hluthafar í sambærilegum
félögum hafa notið á undanförnum árum. 

Með hliðsjón af því að mjög skammt er  liðið síðan að stjórn
Vinnslustöðvarinnar hf. kynnti framangreint mat Saga Capital fjárfestingarbanka
hf. á tilboðum til hluthafa og að nú standa yfir sumarleyfi hjá almenningi er
óvíst að  allir hluthafar Vinnslustöðvarinnar hf. hafi vitneskju um
framangreinda niðurstöðu Saga Capital fjárfestingarbanka hf.   Þykir Stillu
eignarhaldsfélagi ehf. því rétt að gefa hluthöfum lengri frest til þess að
ganga frá sölu  hlutabréfa sinna en hinn upphaflegi samþykkisfrestur kvað á um. 

Framlenging á gildistíma samkeppnistilboðsins hefur engin áhrif á þá sem þegar
hafa samþykkt tilboðið og þurfa þeir hluthafar sem þegar hafa skilað inn
samþykki sínu því ekki að aðhafast neitt.  Framlenging á gildistímanum felur
ekki  í  sér breytingar á samkeppnistilboði Stillu eignarhaldsfélags ehf. í 
Vinnslustöðina hf. 

Uppgjör samkvæmt tilboðinu fer fram innan fimm daga frá lokum samþykkisfrests
þann 20 ágúst 2007. Þó munu uppgjör þeirra tilboða sem samþykkt eru fyrir
upphaflega ákveðinn lokadag samþykkisfrests, þann 23. júlí 2007,  fara fram
fyrir 28. júlí n.k. eins og greindi í tilboðsyfirliti Stillu eignarhaldsfélags
ehf.