- Yfirtökutilboð Eyjamanna ehf. í Vinnslustöðina hf. - kaup á hlutabréfum þeirra sem samþykkt hafa tilboðið


Eyjamenn ehf. hafa í dag, 23. júlí kl. 13:49, keypt 143.830 hluti í
Vinnslustöðinni hf. á genginu 4,6 en um er að ræða hluti þeirra sem þegar hafa
tekið yfirtökutilboði Eyjamanna ehf. í Vinnslustöðina hf. Uppgjör fór fram í
dag. 

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson er stjórnarformaður og einn eiganda Eyjamanna
ehf. og framkvæmdastjóri útgefanda. Haraldur Gíslason er einn eigenda Eyjamanna
ehf. og situr í stjórn útgefanda. Kristín Elín Gísladóttir er einn eiganda
Eyjamanna ehf. og situr í stjórn útgefanda sem varamaður. Samtals eftir
viðskiptin á Eyjamenn ehf. 143.830 hluti og aðilar sem standa að því félagi
eiga 782.971.430 hluti eftir viðskiptin.