Hagnaður eftir skatta 46,8 milljarðar króna • Hagnaður hluthafa eftir skatta á fyrri helmingi ársins jókst um 43,8%, í 45,8 milljarða króna miðað við sama tímabil árið 2006. • Arðsemi eigin fjár á fyrri helmingi ársins var 32,0% á ársgrundvelli og hagnaður á hlut 62,2 krónur (47,9 krónur á sama tímabili 2006) • Hagnaður hluthafa eftir skatta á öðrum ársfjórðungi jókst um 95,5%, í 25,5 ma.kr. miðað við sama tímabil árið 2006. • Rekstrartekjur á öðrum ársfjórðungi jukust um 66,8%, námu 51,8 mö. kr. • Hreinar vaxtatekjur á öðrum ársfjórðungi jukust um 38,0%, námu 19,8 ma.kr. • Hreinar þóknanatekjur á öðrum ársfjórðungi jukust um 65,4%, námu 15,2 mö.kr. • Rekstrarkostnaður á öðrum ársfjórðungi jókst um 28,5%, í 19,0 ma.kr. • Kostnaðarhlutfall á öðrum ársfjórðungi var 36,7% • Bankinn bókar 4,3 ma.kr. hagnað vegna sölu á dótturfélagi sínu, Eik fasteignafélag hf. á öðrum ársfjórðungi • Heildareignir námu 4.570,4 milljörðum króna í lok júní 2007 - jukust um 23,3% á föstu gengi frá áramótum, en um 12,7% í íslenskum krónum Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri „Rekstur Kaupþings banka gekk mjög vel á öðrum ársfjórðungi og allar megin starfstöðvar bankans skila góðri afkomu. Mikil aukning þóknanatekna einkennir þetta uppgjör og jafnframt er góður vöxtur í hreinum vaxtatekjum. Ánægjulegt er að sjá hve innlán hjá bankanum hafa aukist það sem af er árinu en þau nema nú 46% af heildarútlánum. Við erum að sjá afrakstur mikillar vinnu í Bretlandi skila sér með algerum viðsnúningi í rekstri KSF og þá gengur rekstur allra helstu afkomueininga bankans betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Jafnframt er verkefnastaða bankans góð og auk þess sem horfur út árið eru góðar." Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar um uppgjörið veita Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs, í síma 444-6112 og Ólöf Hildur Pálsdóttir, Fjárfestatengslum í síma 444-6569 (ir@kaupthing.net). Upplýsingar um Kaupþing er einnig hægt að nálgast á heimasíðum bankans www.kaupthing.is og www.kaupthing.com