- Samkeppnistilboð Stillu ehf. í Vinnslustöðinni - Kaup á hlutabréfum


Stilla eignarhaldsfélag ehf., kt. 460607-0270, hefur í dag fallist á beiðni um
að fella niður hluta af samþykki samkeppnistilboðs og framsals sem tilkynnt var
um 25. júlí sl.  Fallist er á niðurfellinguna vegna heimildarskorts
framseljanda.  Um er að ræða niðurfellingu á 10.171.582 hlutum.  Heildarkaup
Stillu eignarhaldsfélags ehf. sem tilkynnt var um 25. júlí sl. eru því
1.568.725 hlutir en ekki 11.740.307 hlutir eins og tilkynnt var um.