- Viðræður hafnar um sameiningu sparisjóðanna Byrs og Sparisjóðs Norðlendinga


Viðræður eru hafnar á milli Byrs - sparisjóðs og Sparisjóðs Norðlendinga um
mögulega sameiningu sjóðanna. Markmiðið er að styrkja stöðu sparisjóðanna í
harðnandi samkeppni á fjármálamarkaði til hagsbóta fyrir viðskiptavini,
starfsfólk og stofnfjáreigendur. Stjórnarformenn sparisjóðanna stýra viðræðunum
samkvæmt umboði frá stjórnum þeirra. 

Íslenskur fjármálamarkaður hefur undanfarin ár einkennst af mikilli grósku og
vexti. Fjármálafyrirtæki hafa vaxið og dafnað og samkeppni hefur aukist mikið.
Viðræður um sameiningu sparisjóðanna eru viðbrögð við þessari þróun. 

Í mögulegu sameiningarferli er stefnt að því að miða skiptahlutföll við sex
mánaða uppgjör sjóðanna sem birt verða í lok ágúst. Verði niðurstaða
viðræðnanna jákvæð yrði sameining háð samþykki stofnfjáreigenda beggja
sjóðanna, Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. Engin tímamörk hafa
verið sett fyrir viðræðurnar en stefnt er að því að sameining komi í kjölfar
sameiningar Byrs og Sparisjóðs Kópavogs. 

BYR - sparisjóður (www.byr.is) er vaxandi fyrirtæki sem býður einstaklingum og
fyrirtækjum faglega ráðgjöf og persónulega þjónustu í fjármálum. Byr varð til
við sameiningu Sparisjóðs vélstjóra og Sparisjóðs Hafnarfjarðar árið 2006.
Sameining Byrs og Sparisjóðs Kópavogs hefur verið samþykkt af stjórnum sjóðanna
og býður samþykkis stofnfjáreigenda og Fjármálaeftirlitsins. 

Sparisjóður Norðlendinga (www.spnor.is) var stofnaður þann 30. júní 1997 með
samruna Sparisjóðs Akureyrar og Arnarneshrepps og Sparisjóðs Glæsibæjarhrepps.
Hann sérhæfir sig í þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki á Norðurlandi og
hefur vaxið mikið á undanförnum árum. Með sameiningu myndu opnast tækifæri
fyrir efldan sparisjóð að auka þjónustu sína og taka þátt í stærri verkefnum
við uppbyggingu öflugs atvinnulífs á Norðurlandi. 

Frekari upplýsingar veita:

Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri BYRS - sparisjóðs
sími: 575 4000
netfang: RagnarZG@byr.is

Örn Arnar Óskarsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norðlendinga
sími: 460 2500
netfang: orn@spnor.is