Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung og fyrri helming ársins 2007 eftir lokun markaða þriðjudaginn 14.ágúst nk. Kynningarfundur Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn miðvikudaginn 15. ágúst á Hótel Loftleiðum (Þingsal 1 ). Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair Group mun kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Kynningin hefst kl. 8:30. Vefvarp Kynningarfundi á ensku verður varpað á netinu kl. 13:30 þann 15. ágúst á slóðinni: https://icelandairgroup.webex.com/icelandairgroup/onstage/g.php?d=843616464&t=a Kynningarefni Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Kauphallar Íslands