- 6 mánaða uppgjör 2007


•  Rekstrartekjur námu € 26,2 milljónum og jukust um 12% frá fyrri hluta ársins
   2006. 

•  Rekstrarhagnaður, án annarra tekna og gjalda, er €2,8 milljónir en var €2,3
   milljónir á fyrri hluta ársins 2006. 

•  Framlegð fyrir afskriftir og fjárliði (Ebidta) er € 4,4 milljónir en var €
   2,8 milljónir á fyrri hluta ársins 2006. 

•  Fjármagnsgjöld að frádregnum fjármunatekjum eru €2,8 milljónir til tekna en
   voru €3,9 milljónir til gjalda á fyrri hluta ársins 2006. 

•  Hagnaður er € 5,3 milljónir en tap fyrri hluta ársins 2006 var € 1,5
   milljónir. 

•  Eiginfjárhlutfall samstæðunnar í lok tímabilsins var 48%.  


Rekstur fyrri helmings ársins 2007

Almennt gekk rekstur samstæðunnar vel á tímabilinu.   Rekstrarhagræðing vegna
sameiningar á  neta- og kaðlaframleiðslu í Litháen er komin fram, sem bætir
samkeppnisstöðu samstæðunnar umtalsvert.  Þá er vöruframboð samstæðunnar öflugt
og áhugaverðar nýjungar í vöruþróun. 

Rekstur dótturfélagsins HiTech Ropes í Noregi, sem eingöngu sinnir sölu til
olíuiðnaðar, gekk vel á tímabilinu, en sala til olíuiðnaðar hefur vaxið
undangengin misseri og var á uppgjörstímabilinu yfir 10% af veltu samstæðunnar. 

Gengishækkun krónunnar á tímabilinu leiddi af sér gengishagnað erlendra lána
innlends dótturfélags Hampiðjunnar og hlutdeildarfélagsins  HB Granda hf.  
Fjárliðir eru því óvenju hagstæðir, sem er mikill umsnúningur frá sama tímabili
árið 2006 þegar þeir voru óvenju óhagstæðir. 

Efnahagur

Heildareignir voru € 79,4 milljónir í lok tímabilsins.  Skuldir námu € 41,6
milljónum og eigið fé nam € 37,8 milljónum, en af þeirri upphæð eru € 6,2
milljónir hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaga. 

Eignarhlutur í HB Granda hf. er bókfærður samkvæmt hlutdeildaraðferð á € 12
milljónir, sem er u.þ.b. helmingur af áætluðu markaðsverðmæti hans. 

Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin með eigin fé, var 
48% af heildareignum samstæðunnar.

Attachments

hampijan hf. 30. juni 2007.pdf