Árshlutareikningur Kjalarvogs ehf. fyrir tímabilið jan-júní 2007 hefur í dag, 27. ágúst 2007, verið staðfestur af stjórn og framkvæmdastjóra félagsins. Sömu reikningsskilaaðferðum var beitt og árið áður. Kjalarvogur ehf. er dótturfélag Húsasmiðjunnar h.f., sem á allt hlutaféð, og er árshlutareikningurinn hluti af samstæðureikningi móðurfélagsins. Afkoma jan-júní 2007 Hagnaður Kjalarvogs ehf. jan - júní 2007 nam 83 m.kr. Rekstrartekjur tímabilsins námu 1.219 m.kr., vörunotkun 757 m.kr. og annar rekstrarkostnaður 346 m.kr. Enginn starfsmaður starfaði hjá félaginu á tímabilinu, en Húsasmiðjan hf. sá um daglegan rekstur. Fjármagnsgjöld tímabilsins námu 16 m.kr. Veltufé frá rekstri nam 87 m.kr. Heildareignir Kjalarvogs ehf. 30.06.2007 voru bókfærðar á 749 m.kr. Heildarskuldir félagsins voru um 336 m.kr. 30.06.2007, allt skammtímaskuldir. Veltufjárhlutfall í lok tímabilsins var 2,27. Eigið fé Kjalarvogs ehf. þann 30.06.2007 nam 413 m.kr og eiginfjárhlutfall var 55,1%. Framtíðarhorfur Tilgangur félagsins er innflutningur, heildsala og smásala á neytenda- og iðnaðarvörum, ásamt annarri starfsemi, sem af því leiðir. Ágætlega lítur út með reksturinn á næstu misserum. Útlit er fyrir áframhaldandi aukningu eftirspurnar og markaðsstaða félagsins er ágæt.
2007
| Source: Húsasmiðjan hf.