- Mesti fjöldi farþega í einum mánuði í sögu Icelandair


Icelandair flutti rúmlega 218 þúsund farþega í áætlunarflugi sínu í júlí og er
það mesti fjöldi farþega sem Icelandair hefur flutt í einum mánuði frá upphafi,
en félagið fagnar í ár 70 ára afmæli sínu. Farþegunum fjölgaði um 5% frá því í
júlí í fyrra en þá voru þeir 207 þúsund. Sætaframboð Icelandair í júli, mælt í
sætiskílómetrum, var aukið um 5% milli ára og sætanýting félagsins í mánuðinum
var 82,5%. 

Á fyrstu sjö mánuðum ársins 2007 fjölgaði farþegum Icelandair um 3% frá síðasta
ári og voru 910 þúsund. Sætanýting á þessu tímabili var 74,5% og lækkaði um 3,0
prósentustig milli ára. ”Við jukum töluvert við framboð okkar í sumar, bættum
við nýjum áfangastöðum og hófum morgunflug frá Íslandi til Bandaríkjanna í
fyrsta sinn", segir Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair. "Við erum því að
sjá fleiri farþega en nokkru sinni fyrr, verulega fjölgun á farþegum frá
Íslandi og til Íslands, en hinsvegar fækkun á farþegum á leið milli
Bandaríkjanna og Evrópu með viðkomu á Íslandi,"segir Jón Karl.