2007


Hagnaður að upphæð kr. 0,3 milljónir kr varð af rekstri Eignarhaldsfélagsins
Bolar ehf. á fyrri árshelmingi 2007 en á sama tímabili í fyrra var 3,4 milljón
króna tap af starfseminni. 

Endurskoðað uppgjör samstæðu Eignarhaldsfélagsins Bolar ehf. fyrir fyrstu 6
mánuði var samþykkt á stjórnarfundi 31.ágúst 2007. 

Eftirfarandi tafla sýnir helstu niðurstöður úr samstæðu-reikningskilum
Eignarhaldsfélagsins Bola ehf: Sjá viðhengi.

Rekstur samstæðu Eignarhaldsfélagsins Bolar ehf. samanstendur af tveim 
rekstrarfélögum Provinor AS, áður Sæplast Norge AS, og Sæplast Canada Inc. auk
móðurfélagsins en eins og fram kom í tilkynningu félagsins 30. mars s.l. þá var
Sæplast Ålesund AS selt Promens hf. í upphafi árs. Rekstur dótturfélaganna gekk
vel á tímabilinu og voru rekstrartekjur þeirra ásamt tekjum af starfsemi
móðurfélagsins 693,3 milljónir króna og hagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var
91,5  milljónir króna eða 13,2% og skiluðu bæði dótturfélögin jákvæðri EBITDA.
Sambærileg EBITDA á sama tímabili í fyrra var 79,0  milljónir  króna eða 8,9%.
Hagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) var 51,3 milljónir króna eða 7,4%
samanborið við 29,8 milljónir króna eða 3,4% sama tímabil í fyrra. Hrein
fjármagnsgjöld námu 53,7 milljónum króna, tap fyrir skatta var 2,4 milljónir
króna og hagnaður tímabilsins eftir skatta 0,3 milljónir króna. 

Niðurstöður efnahagsreiknings eru 2.240 milljónir króna þar af er eigið fé
634,6 milljónir króna og er eiginfjárhlutfall 28,4%. 

Horfur í rekstri dótturfélaganna tveggja á síðari árshelmingi eru ágætar.

Nánari upplýsingar veitir Geir A. Gunnlaugsson í síma 590 5588 eða 892 8040.

Attachments

bolar- frett og lykiltolur 300607.pdf bolar.pdf