2007 - ICEQ - Leiðrétting: Frétt send út 2007-08-30 13:57:25 CET


Leiðrétting: Viðhengi vantaði og lykiltölum bætt við.


Framsetning árshlutareiknings ICEQ verðbréfasjóðs er í samræmi við reglur um
reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af
Fjármálaeftirlitinu.
 
Afkoma ICEQ verðbréfasjóðs á fyrri hluta ársins 2007

•  Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á tímabilinu að fjárhæð 1.622 m.kr.
   samkvæmt rekstrarreikningi og er hagnaðurinn færður til hækkunar á
   hlutdeildarskírteinum ICEQ verðbréfasjóðs.
 
•  Eigið fé sjóðsins nam í lok júní 6.533 m.kr. skv. efnahagsreikningi.

•  Ársreikningurinn var kannaður af KPMG hf. sem telur að við könnun þeirra hafi
   ekkert leitt í ljós sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi
   glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu 1. janúar - 30. júní 2007,
   efnahag í lok júní og breytingu á handbæru fé og hreinni eign sjóðsins, í
   samræmi við góða reikningsskilavenju. 

Eigið fé Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem er rekstraraðili ICEQ
verðbréfasjóðs nam þann 30. júní 2007 4.020 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum nr. 161/2002 um
fjármálafyrirtæki er 56,5% en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en
8,0%. Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. er dótturfélag Kaupþings banka hf. og
hluti af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans. 

Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag í
móttöku Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. að Borgartúni 19, Reykjavík.
 
Nánari upplýsingar um árshlutareikning ICEQ verðbréfasjóðs og Rekstrarfélags
Kaupþings banka hf. veita Ómar Kaldal Ágústsson, framkvæmdastjóri
Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., og Sigþór Jónsson, sjóðstjóri, í síma
444-6000.

Attachments

iceq - lykiltolur.pdf arshlutareikningur 30-6-07 iceq.pdf