Leiðrétting. Ritvillur voru á tveimur stöðum varðandi hagnað og eigið fé í fyrri fréttatilkynningunni og lykiltölum bætt við. Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur skilaði 8.198 milljón króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 4.769 milljón króna tap á sama tímbili árið áður. Rekstrartekjur fyrstu sex mánuði ársins námu 10.450 milljónum króna en voru 8.524 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Hagnaður fyrirtækisins fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta,(EBITDA), var 5.325 milljónir króna samanborið við 3.842 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 7.500 milljónir króna á tímabilinu, en voru neikvæðir um 9.158 milljónir króna á sama tímabili árið 2006. Heildareignir þann 30. júní 2007 voru 148.940 milljónir króna en voru 139.977 milljónir króna í árslok 2006. Eigið fé þann 30. júní 2007 var 76.795 milljónir króna en var 69.359 milljónir króna í árslok árið 2006. Heildarskuldir félagsins þann 30. júní 2007 voru 72.145 milljónir króna samanborið við 70.618 milljónir króna í árslok 2006. Eiginfjárhlutfall var 51,6% þann 30. júní 2007 en var 49,6% í árslok 2006. Með nýjum lögum nr. 50/2005 um skattskyldu orkufyrirtækja varð fyrirtækið skattskylt í samræmi við 2. gr. Laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Lögin koma til framkvæmdar við álagningu tekjuskatts á árinu 2007 vegna tekna á árinu 2006. Sá hluti starfsemi OR er lýtur að rekstri vatnsveitu og fráveitu er þó áfram undanskilinn tekjuskatti. Langtímaskuldir OR eru að stærstum hluta í erlendri mynt. Gengishagnaður Orkuveitu Reykjavikur af langtímaskuldum nam 7.682 milljónum króna á tímabilinu. Gengisvísitala í lok júní var 114,0 en var 129,2 í árslok 2006. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reiknikngsskilastaðla og er nú birtur þannig í fyrsta sinn. Breytingin hefur þau heildaráhrif á eigið fé, að bókfært eigið fé í ársbyrjun 2007 hækkar um 2.688 milljónir króna, úr 66.671 milljón í 69.359 milljónir króna. Megin skýringin er sú að innbyggðar afleiður í raforkusölusamningum eru nú færðar í reikningsskil fyrirtækisins. Horfur: Horfur eru góðar um rekstur Orkuveitu Reykjavíkur á árinu 2007. Umsvif fara vaxandi og fjárfestingar eru miklar. Stærsta einstaka verkefnið er bygging nýrrar virkjunar á Hellisheiði sem mun stórauka eigin orkuvinnslugetu fyrirtækisins, og hefur 1. áfangi hennar þegar verið tekinn í notkun. Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, í síma 516-6000.