1. Afkoma Glitnis sjóða hf. fyrstu 6 mánuði 2007 Hagnaður Glitnis sjóða hf. eftir skatta fyrstu sex mánuðina 2007 nam 6,1 m.kr. samanborið við 16,1 m.kr. fyrstu sex mánuðina 2006. Hreinar rekstrartekjur námu 716 m.kr. samanborið við 555 m.kr. árið áður, jukust um 28,9% Rekstrargjöld námu 708 m.kr. samanborið við 535 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins 2006. Heildareignir félagsins námu 264 m.kr. en voru 215 m.kr. í ársbyrjun. Eigið fé í lok júní nam 88,9 m.kr. en var 82,8 m.kr. í ársbyrjun. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem er reiknað samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 43,8% í lok júní en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%. Fjármunir sjóða í stýringu Glitnis sjóða hf. námu 183.558 m.kr. í lok júní 2007 samanborið við 145.765 m.kr. í árslok 2006, jukust um 26%. Glitnir sjóðir hf. sér um stýringu og rekstur á sex sjóðsdeildum í Verðbréfasjóðum Glitnis, tveimur deildum í Fjárfestingarsjóðum Glitnis og einni deild í Fagfjárfestasjóði Glitnis. Einnig sér félagið um stýringu á tveimur deildum verðbréfasjóða fyrir Glitnir Asset Management S.A. í Lúxemborg og einum vogunarsjóði. Hrein eign í stýringu Glitnis sjóða hf. í Lúxemborg eru 9.225 m.kr. í lok júní 2007. Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur árshlutareikning Glitnis sjóða hf. og B-hluta sem inniheldur árshlutareikning Verðbréfasjóða Glitnis og Fjárfestingarsjóða Glitnis. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu. Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af PricewaterhouseCoopers hf. Árshlutareikningur félagsins verður tilbúinn 10. september og mun liggja frammi hjá Glitni, Kirkjusandi, 4. hæð og á www.glitnir.is Nánari upplýsingar um árshlutareikning Glitnis sjóða hf. veitir Eggert Þór Kristófersson, fram¬kvæmda¬stjóri í síma 440-4955.