"Árshlutauppgjör Hitaveitu Suðurnesja er nú í fyrsta sinn byggt á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS). Við innleiðingu staðlanna hækkaði eigið fé félagsins um 2.192 millj. kr. í árslok 2006. Nánar er fjallað er um áhrif af innleiðingu staðlanna hér á eftir. Samanburðarfjárhæðum vegna 2006 hefur verið breytt til samræmis við nýjar reikningsskilareglur." Hagnaður félagsins á fyrri helmingi ársins nam 2.720 millj. kr., en á sama tímabili árið áður var hagnaður félagsins 2.368 millj. kr. Samkvæmt rekstrarreikningi námu rekstrartekjur HS hf. á fyrri árshelmingi 4.048 millj. kr., en þær voru 2.682 millj. kr. á sama tímabili árið áður. Hækkun tekna er 51% eða 1.366 millj. kr. og stafar aðallega af raforkusölu til Norðuráls sem jókst um 692 millj. kr. og 636 millj. kr. eingreiðslu frá Bandaríkjastjórn vegna uppsagnar hennar á samningi um kaup á orku til varnarliðsins. Rekstrargjöld námu 2.364 millj. kr., en voru 1.638 millj. kr. árið áður. Hækkun rekstrargjalda er vegna hækkana á kostnaði við framleiðslu, sölu og dreifingu á raforku. Hreinar fjármunatekjur voru 1.581 millj. kr. á tímabilinu samanborið við 433 millj. kr. árið áður. Styrking íslensku krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum leiðir til 1.636 millj. kr. gengishagnaðar, en á fyrri helmingi ársins 2006 var gengistap að fjárhæð 1.574 millj. kr. Vaxtagjöld lækka frá fyrra ári um 136 millj. kr. eða úr 363 millj. kr. í 227 millj. kr., einkum vegna vaxtaskiptasamnings sem gerður var í lok ársins 2006. Í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla sýnir félagið áhrif innbyggðra afleiða í raforkusölusamningum sem það hefur gert. Tekjur af gangvirðisbreytingum innbyggðra afleiða félagsins námu 150 millj. kr. á tímabilinu samanborið við 1.948 millj. kr. á fyrri helmingi ársins 2006. Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir HS hf. 30. júní 2007 bókfærðar á 35.867 millj. kr. Eignir hækkuðu um 2.975 millj. kr. frá ársbyrjun, aðallega vegna fjárfestinga félagsins í Reykjanesvirkjun og Orkuveri 6 í Svartsengi. Skuldir HS hf. nema 15.660 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, þar af eru skammtímaskuldir 3.574 millj. kr. Skuldir hafa hækkað um 655 millj. kr. frá ársbyrjun. Hækkunin skýrist af lántökum félagsins vegna Orkuvers 6 í Svartsengi. Eigið fé HS hf. var 20.207 millj. kr. þann 30. júní 2007. Eiginfjárhlutfall í júnílok var 56%. Í ársbyrjun var eigið fé 17.887 millj. kr. og eiginfjárhlutfallið 54%. Horfur um rekstur Hitaveitu Suðurnesja eru góðar. Orkuver 6 í Svartsengi, sem er 30 MW, verður gangsett fyrir árslok 2007 og munu tekjur af raforkusölu til stóriðju auka heildartekjur félagsins umtalsvert. Umsvif fara vaxandi og áfram verður unnið að uppbyggingu kerfa samfara aukningu byggðar á þjónustusvæði fyrirtækisins og aukinni orkuvinnslu. Unnið verður að rannsóknum á frekari virkjunarkostum og er verið að afla rannsóknarleyfa í því skyni. Stærstu einstöku verkefnin eru framkvæmir við orkuver 6 í Svartsengi Áhrif af innleiðingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IFRS) "Árshlutareikningur Hitaveitu Suðurnesja er í fyrsta skipti gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Innleiðing þeirra leiðir til breytinga á mati eigna og skulda og framsetningu á rekstrar- og efnahagsreikningi hitaveitunnar." "Árshlutareikningur Hitaveitu Suðurnesja fyrir fyrri árshelming ársins 2007 er gerður í samræmi við þær reikningsskilaaðferðir sem fjallað er um í skýringum árshlutareiknings um reikningsskilaaðferðir. Þetta á einnig við um samanburðarfjárhæðir fyrir árið 2006 og opnunarefnahagsreikning 1. janúar 2006, þar sem breytingarnar taka gildi þann dag, sem einnig er nefndur innleiðingardagur. Fjárhæðum í opnunarefnahagsreikningi 1. janúar 2006 hefur verið breytt í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, en voru áður birtar í samræmi við íslensk lög og reikningsskilavenjur. Heildaráhrif yfirfærslunnar í alþjóðlega reikningsskilastaðla á eigið fé félagsins er að það hækkar um 2.192 millj. kr. í árslok 2006." Helstu breytingar á mati eigna og skulda við innleiðingu á IFRS í árslok 2006: - Í samræmi við IAS 39 hefur félagið fært innbyggðar afleiður í raforkusölusamningum á gangvirði og leiddi það til hækkunar á eigin fé um 2.831 millj. kr. - Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum eru færðir samkvæmt hlutdeildaraðferð í reikningsskilunum en voru áður færðir á kostnaðarverði. Þessi breyting lækkar bókfært eigið fé um 127 millj. kr. - Við innleiðingu IFRS var aðferðum við eignfærslu rannsóknarkostnaðar breytt til samræmis við IAS 38. Þessi breyting hefur þau áhrif að eigið fé lækkar um 25 millj. kr. - Flokkun á þróunarkostnaði var breytt til samræmis við IAS 38. Þessi breyting hefur þau áhrif að rekstrar-fjármunir lækka um 920 millj.kr. og óefnislegar eignir hækka um sömu fjárhæð. - Heildaráhrif vegna innleiðingar IFRS á tekjuskatt eru þau að eigið fé lækkar um 486 millj. kr. Nánari upplýsingar veitir Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja hf., í síma 422 5200.