2007 - Leiðrétting - Frétt send út 2007-08-30 11:17:05 CET


Leiðrétting. Villan var í yfirliti efnahagsreiknings en rekstrarreikningur var
réttur sem og skýringar.  Villan hafði áhrif á tölur í fréttatilkynningu einnig
og er hún því einnig birt aftur. 

Samson er eignarhaldsfélag og er tilgangur þess almenn fjárfestingastarfsemi og
skyldur rekstur. Félagið er eigandi tveggja dótturfélaga og er því birtur
samstæðureikningur félagsins og dótturfélaga þess. Auk móðurfélagsins eru í
samstæðunni félögin Samson Properties ehf. sem er fasteignafélag sem sérhæfir
sig í rekstri, þróun og fjárfestingum í fasteignum og fasteignatengdum
verkefnum í Evrópu. Einnig er fjárfestingafélagið Ópera fjárfestingar ehf.
hluti af samstæðunni en það félag er eigandi að um 26% eignarhluta í
Fjárfestingarfélaginu Gretti hf. 

Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla
og er það í fyrsta sinn sem samstæðan birtir reikning sinn með þeim hætti.
Árshlutareikningar samstæðunnar hafa undanfarin ár verið gerðir í samræmi við
lög um ársreikninga og íslenskar reikningsskilavenjur. Innleiðing alþjóðlegu 
reikningsskilastaðlanna hafði óveruleg áhrif á fjárhagsstöðu samstæðunnar og
ekki voru gerðar breytingar á samanburðarfjárhæðum eigin fjár og afkomu
samstæðunnar eins og þær voru birtar samkvæmt íslenskum reikningsskilavenjum
fyrir árið 2006. 

Eignarhluti móðurfélagsins í Landsbanka Íslands hf. var 4.559 m.kr. að
nafnverði í lok tímabilsins og nam hann 41,37% af heildarhlutafé bankans.
Markaðsverð eignarhlutans nam 173.700 m.kr. í lok tímabilsins 
en bókfært virði hans er 73.081 m.kr. en beitt er hlutdeildaraðferð við bókun
eignarhlutans. Gengi hlutafjár í Landsbanka Íslands hf. hækkaði um 43,8% á
fyrri hluta ársins 2007. 

Tap félagsins á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2007 nam 3.209 m.kr.
samanborið við 12.184 m.kr. hagnað á sama tíma í fyrra. Þar sem beitt er
hlutdeildaraðferð við að gera grein fyrir eignarhluta félagsins í 
Landsbanka Íslands hf. færast einungis 10.912 m.kr. til tekna þó markaðsvirði
eignarhluta Samson ehf. hafi aukist um 52.885 m.kr. á tímabilinu. Félagið færir
afleiðusamninga á markaðsvirði og því kemur fram gjaldfærsla að fjárhæð 14.658
m.kr. sem að stórum hluta er vegna styrkingar íslensku krónunnar á 
tímabilinu. Sem alþjóðlegt fjárfestingafélag beitir félagið gengisvörnum til að
styðja við eign félagsins í Landsbanka Íslands hf. og draga úr gengisáhrifum á
eignir félagsins í evrum talið. Þar sem félagið beitir hlutdeildaraðferð á eign
sína í bankanum er hækkun á markaðsverði eignarinnar ekki færð að fullu á móti 
þessu tapi.

Bókfært eigið fé í lok tímabilsins nam 25.622 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi
og lækkaði það um 12,8% frá árslokum 2006. Ef eignarhlutur félagsins í
Landsbanka Íslands hf. væri færður til eignar á markaðsverði væri eigið fé
félagsins 108.129 m.kr. að teknu tilliti til tekjuskattsáhrifa og
eiginfjárhlutfall þá 42,3%. Í árslok 2006 var eigið fé félagsins skv. sömu
aðferð 73.063 m.kr. og hefur því aukist um 48% á tímabilinu.

Attachments

samson 30 juni 2007 tilkynning.pdf 0607 samson.pdf