2007


Hagnaður ríflega áttfaldast - arðsemi eigin fjár 121,5%

Rekstur
Afkoma Sparisjóðs Kópavogs (SPK) á fyrri árshelming ársins 2007 er sú langbesta
í sögu sparisjóðsins. Hagnaðurinn er mun hærri en áður hefur sést í bókum
sjóðsins á heilu ári. Tímabilið var sjóðnum einstaklega hagfellt og hagnaður
langt umfram áætlanir. 

Hagnaður SPK fyrstu 6 mánuði ársins 2007 er 983 millj.kr. fyrir skatta en var
106 millj.kr. á sama tímabili árið 2006, aukningin nemur 831,6%. Að teknu
tilliti til skatta er hagnaður tímabilsins 811 millj.kr. í samanburði við 96
millj.kr. fyrri hluta árs 2006. Hagnaður eftir skatta eykst um 745,7% milli
tímabila. 

Arðsemi eiginfjár var 121,5% á ársgrundvelli. Er þetta mesti hagnaður og hæsta
arðsemi í sögu SPK. 

Vaxtatekjur fyrri hluta árs 2007 eru 1.148 millj.kr. og dragast saman um 3,8%
frá sama tímabili fyrra árs. Vaxtagjöld aukast um 4,8% og eru alls 1.035
millj.kr. Hreinar vaxtatekjur sparisjóðsins eru 113 millj.kr. en voru 206
millj.kr. á sama tíma árið 2006. 

Vaxtamunur, þ.e. vaxtatekjur að frádregnum vaxtagjöldum í hlutfalli af
meðalstöðu heildarfjármagns, er nú 1,0% en var 2,2% á sama tímabili árið 2006. 

Aðrar rekstrartekjur á fyrri hluta ársins 2007 eru 1.202 millj.kr. samanborið
við 132 millj.kr. á sama tíma í fyrra. Hreinar rekstrartekjur eru 1.363
millj.kr. samanborið við 389 millj.kr. á sama tímabili  2006. 

Laun og launatengd gjöld eru 167 millj.kr. en voru 102 millj. á sama tímabili í
fyrra, eða 63,2% hækkun milli tímabila. Afskrift rekstrarfjármuna er 3,8
millj.kr. sem er 45,4% lækkun frá sama tíma í fyrra. Annar rekstrarkostnaður er
157 millj.kr. samanborið við 119 millj.kr. á sama tíma í fyrra, 32,3% hækkun. 

Rekstrargjöld sem hlutfall af meðalstöðu efnahags eru 2,5% á ársgrundvelli og
lækkar úr 3,0% fyrir árið 2006. Kostnaðarhlutfall er 24,1% en var 58,7% á sama
tíma í fyrra. 

Virðisrýrnun útlána er 52 millj.kr. samanborið við 55,0 millj.kr. fyrstu 6
mánuði ársins 2006. Afskriftareikningur útlána er 0,9% af heildarútlánum og
veittum ábyrgðum, var 1,1% í árslok 2006. 

Efnahagur
Útlán til viðskiptavina eru 17.169 millj.kr., aukast um 1.351 millj.kr. frá
áramótum eða um 8,6%. Helsta útlánsform er sem fyrr verðtryggð lán. 

Almenn innlán ásamt lántöku eru 18.561 millj.kr. samanborið við 16.591
millj.kr. í árslok 2006. Almenn innlán eru 11.993 millj.kr., aukast um 7,4% frá
áramótum, sem er einkar ánægjuleg þróun. Lántaka er 6.568 millj.kr. samanborið
við 5.419 millj.kr. í árslok 2006. Hllutfall almennra innlána af útlánum er
hátt og þar af leiðandi er fjármögnun sparisjóðsins sterk. 

Heildarfjármagn í lok júní er 25.102 millj.kr., hækkar um 4.052 millj.kr. frá
árslokum 2006 eða 19,3%. 

Eigið fé
Eigið fé SPK í árslok 2006 er 2.083 millj.kr., hækkar um 664 millj.kr. fyrstu 6
mánuði ársins 2007 eða 46,9%. Eiginfjárhlutfall samkvæmt CAD-reglum er 14,9% en
var 11,3% um síðustu áramót. CAD-eiginfjárhlutfall má ekki vera lægra en 8,0%. 


Nánari upplýsingar veitir:
Carl H. Erlingsson, sparisjóðsstjóri, sími 515-1900 - carl@spk.is


Helstu niðurstöður úr rekstri og efnahag:

  Hagnaður SPK tímabilið 1. janúar til 30. júní 2007 er 983 millj.kr. fyrir
   skatta samanborið við 106 millj.kr. hagnað sama tímabil árið 2006. 

  Hagnaður eftir skatta er 811 millj. kr. samanborið við 96 millj.kr. fyrstu 6
   mánuði ársins 2006.
 
  Arðsemi eigin fjár er 121,5% á ársgrundvelli en var 20,3% á sama tímabili
   2006.
 
  Vaxtatekjur eru 1.148 millj. kr. og drógust saman um 3,°8% frá sama tímabili
   árið 2006.
 
  Vaxtagjöld eru 1.034 millj. kr. og jukust um 4,8% frá sama tímabili árið
   2006. 

  Hreinar vaxtatekjur eru 113 millj.kr. samanborið við 206 millj.kr. á sama
   tímabili 2006, drógust saman um 44,9%.
 
  Hreinar rekstrartekjur eru 1.363 millj. kr. samanborið við 389 millj. kr. á
   sama tímabili 2006, aukast um 974 millj.kr. eða 250%. 

  Rekstrargjöld eru 328 millj.kr. fyrstu 6 mánuði ársins og aukast um 43,7% frá
   sama tímabili árið 2006. Launakostnaður hækkar um 63,2% en almennur
   rekstrarkostnaður hækkar um 32,3%. 

  Kostnaðarhlutfall er 24,0% samanborið við 58,6% á sama tímabili 2006.
 
  Virðisrýrnun útlána er 52 millj.kr. samanborið við 55 millj.kr. á sama
   tímabili 2006.  Afskriftareikningur, reiknaður af útlánum og veittum
   ábyrgðum, er 0,93%. 

  Útlán til viðskiptavina eru 17.169 millj.kr. aukast um 8,5% frá árslokum
   2006.
 
  Almenn innlán eru 11.993 millj.kr. aukast um 7,4% frá árslokum 2006.

  Eigið fé í lok júní 2007 er 2.086 millj.kr. hækkar um 664 millj.kr. frá
   áramótum eða 46,85%. 

  Eiginfjárhlutfall samkvæmt CAD-reglum er 14,9%

  Vaxtamunur tímabilsins 1,0% samanborið við 2,2% sama tímabil árið 2006.

  Heildarfjármagn í júní lok 2007 er 25.102 millj.kr., hækkar um 4.051 millj.
   kr. eða 19,3% frá áramótum.

Attachments

sparisjour kopavogs - frettatilkynning.pdf spk arshlutareikningur 30.06.07.pdf