2007


Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á
Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Eignarhaldið er
breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma. Hlutverk
sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiskonar verkefni
sem sveitarfélögin á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi sambandsins
flokkast því undir að vera á vettvangi 
sveitarfélaga.

Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500
millj. kr. Lánið er verðtryggt, greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti.
Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem
sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun
hann greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir
hönd sveitarfélaganna. Sveitarfélögin 
bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánsins og sambandið sér um að innheimta
hjá hverju þeirrra hlutdeild í afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga
og standa skil á þeim til skuldareigenda. Í lok júní 2007 námu eftirstöðvar
lánsins 380,8 millj. kr. og eftirstöðvar þess voru í fullum skilum. 

Tekjuafgangur sambandsins á tímabilinu 1/1 - 30/6 2007 nam rúmum 2,6 milljónum
kr. og eigið fé í lok júní 2007 nam 40,2 milljónum kr. samkvæmt
árshlutareikningi. Starfsemi sambandsins var í megninatriðum í samræmi við
áætlanir og greiðslur sveitarfélaganna til sambandsins vegna
fjármögnunarverkefna þess voru í skilum. 

Guðjón Guðmundsson er framkvædastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og
veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu. 

Attachments

lykiltolur 30 8 07.pdf arshlutareikningur300607.pdf