Árshlutareikningur Heklu fasteigna ehf. fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2007 hefur verið staðfestur af stjórn og framkvæmdastjóra félagsins. Árshlutareikningurinn hefur fengið fyrirvaralausa könnunaráritun löggilts endurskoðanda félagsins. Innleiðing alþjóðlegra reikningsskilastaðla Árshlutareikningur Heklu fasteigna ehf. er nú í fyrsta skipti gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) IAS 34. Engar breytingar urðu á efnahagsreikningi félagsins við yfirfærslu í alþjóðlega reikningsskilastaðla. Rekstur Heildartekjur Heklu fasteigna ehf. námu á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2007 91,9 millj. kr. og rekstrargjöld námu 20,2 millj. kr. Rekstrarhagnaður, EBITDA, nam því 71,7 millj. kr. Að teknu tilliti til matsbreytinga fjárfestingaeigna og fjármagnsliða nam tap félagsins fyrir tekjuskatt 10,6 millj. kr. og tap tímabilsins nam 8,7 millj. kr. Efnahagur Heildareignir Heklu fasteigna ehf. voru þann 30. júní 2007 bókfærðar á 1.774,3 millj. kr. Heildarskuldir félagsins námu á sama tíma 1.602,2 millj. kr. Þann 30. júní 2007 var eigið fé Heklu fasteigna ehf. 172,1 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 9,7%. Nánari upplýsingar veitir Birgir Sigurðsson, framkvæmdastjóri, sími: 590 5000, netfang: birgir@hekla.is.
2007
| Source: Hekla fasteignir ehf.