- Breytingar á lánaumsýslu ríkissjóðs


Fjármálaráðherra hefur ákveðið að fela Seðlabanka Íslands útgáfu innlendra
markaðsverðbréfa ríkissjóðs sem Lánasýsla ríkisins annast nú, en bankinn annast
nú þegar umsýslu erlendra lána ríkissjóðs. 

Í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa á íslensku fjármálaumhverfi og á stöðu
ríkisins á lánamarkaði er nú talið mögulegt að framkvæma lánaumsýslu ríkissjóðs
með hagkvæmari hætti en verið hefur með því að flytja verkefni stofnunarinnar
til Seðlabanka Íslands. Í Danmörku og Noregi sjá seðlabankar landanna um
lánaumsýslu ríkissjóðs á grundvelli samninga milli fjármálaráðuneytis og
þeirra. 

Helstu kostir þess að hafa heildarumsjón lánamála ríkissjóðs á einum stað eru
að með því fæst betri yfirsýn og skilvirkari lána-, gjaldeyris- og
lausafjárstýring og hagræðing næst hvað varðar fastan kostnað og nýtingu
starfsmanna. Þar sem eitt meginhlutverk Seðlabankans snýr að
peningamálastjórnun, sem þarf ekki alltaf að fara saman við hagkvæma
lánastýringu ríkissjóðs, er hins vegar gert ráð fyrir að í samningi 
við Seðlabankann um þau verkefni sem Lánasýslan hefur haft með höndum, verði
skýrt kveðið á um verkskiptingu milli aðila og um ákvörðunarvald
fjármálaráðuneytisins í lánamálum og endanlegt úrslitavald ráðuneytisins
gagnvart framkvæmd samningsins. 

Samningurinn, sem undirritaður var í dag, tekur gildi frá 1. október n.k. Lýkur
þar með starfsemi Lánasýslu ríkisins en stofnunin verður síðan formlega lögð
niður með lögum.

Attachments

breytingar-a-lanaumsyslu-rikissjods.pdf