2007


Árshlutauppgjör Sparisjóðs Bolungarvíkur er nú í fyrsta sinn byggt á
alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS).  Við innleiðingu staðlanna hækkaði
eigið fé sjóðsins um 114 millj. kr. nánar er fjallað er um áhrif af innleiðingu
staðlanna hér á eftir.  Samanburðarfjárhæðum vegna ársins 2006 hefur verið
breytt til samræmis við nýjar reikningsskilareglur. 

Hagnaður sparisjóðsins nam 230 millj. kr. á fyrri árshelmingi ársins 2007,
samanborið við 62 millj. kr. hagnað á fyrri árshelmingi 2006. 

Helstu niðurstöður úr rekstri og efnahag.

-  Hagnaður sparisjóðsins nam 230 millj. kr. á tímabilinu samanborið við 62
   millj. kr. hagnað á sama tímabili á árinu 2006. 

-  Arðsemi eigin fjár var 37,5% samanborið við 11,8% arðsemi á sama tímabili á
   árinu 2006. 

-  Hreinar vaxtatekjur lækka um 24 millj. kr. frá fyrra ári og nema nú 59
   millj. kr. 

-  Hreinar rekstrartekjur námu 395 millj. kr. og hækka um 193 millj. kr. frá
   fyrra ári. 

-  Rekstrarkostnaður á tímabilinu nemur 92 millj. kr. og hækkar um 15 millj.
   kr. frá fyrra ári. 

-  Virðisrýrnun útlána nam 26 millj. kr. og lækkar um 27 millj. kr. frá fyrra
   ári. 

-  Heildareignir námu 7.039 millj. kr. og hafa aukist um 4,6% frá árslokum 2006.

-  Útlán til viðskiptamanna námu 3.502 millj. kr. og hafa aukist um 1,5% á
   árinu. 

-  Innlán námu 3.486 millj. kr. og jukust um 10,2% á tímabilinu.

-  Eigið fé nam 1.464 millj. kr. í lok tímabilsins og eykst um 16% á tímabilinu.

-  Eiginfjárhlutfall sjóðsins í lok júní var 20,7% en það var 24,3% í árslok
   2006. 


Rekstur Sparisjóðs Bolungarvíkur gekk vel fyrstu 6 mánuði ársins og er
hagnaðurinn umfram áætlanir. Sjóðurinn skilaði 230 millj. kr. hagnaði á
tímabilinu, en umtalsverð hækkun varð á fjáreignum sjóðsins.  Stjórnendur
sparisjóðsins gera ráð fyrir að afkoma fyrir seinni hluta ársins verði góð þó
svo ekki sé gert ráð fyrir sömu hækkunum á verðbréfum sjóðsins á seinni hluta
ársins. 

Áhrif af innleiðingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IFRS)

Árshlutareikningur Sparisjóðs Bolungarvíkur er nú í fyrsta skipti gerður
samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.  Innleiðing þeirra leiðir til
breytinga á bæði á mati eigna og skulda svo og framsetningu á rekstrar- og
efnahagsreikningi sparisjóðsins. 

Árshlutareikningur sparisjóðsins fyrir fyrri árshelming ársins 2007 er gerður í
samræmi við þær reikningsskilaaðferðir sem fjallað er um í skýringum með
ársreikningi um reikningsskilaaðferðir.  Þetta á einnig við um
samanburðarfjárhæðir fyrir árið 2006 og opnunarefnahagsreikning 1. janúar 2006,
þar sem breytingar taka gildi þann dag, sem einnig er nefndur
innleiðingardagur. Fjárhæðum í opnunarefnahagsreikningi 1. janúar 2006 hefur
verið breytt í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, en voru áður birtar
í samræmi við íslensk lög og reikningsskilavenjur.  Ekki er um að ræða
verulegar breytingar á sjóðstreymi sparisjóðsins samkvæmt alþjóðlegum
reikningsskilastöðlum samanborið við hvernig það var áður samkvæmt íslenskum
reikningsskilavenjum. Heildaráhrif yfirfærslunnar í alþjóðlega
reikningsskilastaðla á eigið fé sjóðsins er að það hækkar um 114 m.kr. 

Helstu breytingar á mat eigna og skulda við innleiðingu á IFRS í árslok 2006:

-  Lántökugjöld tekjufærast/gjaldfærast á lánstímanum í stað þess að vera færð
   sem tekjur/gjöld á lántökudegi.  Þar af leiðandi lækka vaxtatekjur og
   vaxtagjöld sparisjóðsins til skamms tíma, en langtímaáhrif verða óveruleg.
   Breyting á eigin fé vegna þessa er lækkun um 19 millj. kr. 

-  Í samræmi við IAS 39 hefur sparisjóðurinn framkvæmt virðisrýrnunarpróf á
   útlánum og leiddi það til lækkunar á eigin fé um 31 m.kr. Samkvæmt IAS 39 ber
   sparisjóðnum að yfirfara öll útlán til að ganga úr skugga um hvort þar sé að
   gæta hlutlægra vísbendinga um virðisrýrnun sem áhrif hefur á vænt fjárstreymi
   af útláninu.  Útlánið verður þá fært niður í núvirði vænts fjárstreymis.
 
-  Vaxtafrysting útlána hefur verið hætt, en samkvæmt eldri reglum voru vextir
   af útlánum þar sem vanskil voru eldri en þriggja mánaða ekki tekjufærðir.
   Þessi breyting hækkar eigið fé um 15 millj. kr. 

-  Sparisjóðurinn metur öll hlutabréf sín í óskráðum félögum á áætluðu
   gangvirði í stað kaupverðs eða markaðsverðs, ef það var áætlað lægra en
   kaupverðið.  Þessar breytingar leiða til gengishagnaðar sem færist í
   rekstrarreikning. Eigið fé hækkar um 221 millj. kr. vegna hækkunar á óskráðum
   eignum metnum á gangvirði. 

-  Aðrar matsbreytingar lækka eigið fé um 48 millj.kr.

-  Vegna framangreindra breytinga hækkar skattskuld sjóðsins um 25 millj. kr.
   og eigið fé lækkar um sömu fjárhæð. 


Nánari grein er gerð fyrir breytingum á reikningsskilum sjóðsins í skýringum
með árhlutareikningum. 

Sparisjóður Bolungarvíkur

Nánari upplýsingar veitir
Ásgeir Sólbergsson sparisjóðsstjóri
sími 450 7100

Attachments

- frettatilkynning spbol 30 6 07 _3_.pdf spbol-6man-2007.pdf