Árshlutareikningur Landsafls hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2007 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34. Lykiltölur: • Hagnaður fyrstu sex mánuði ársins 2007 nam 378 millj. kr. en nam 241 millj. kr. fyrir sama tímabil árið áður. • Rekstrartekjur fyrstu sex mánuði ársins 2007 námu 574 millj. kr. en námu 524 millj. kr. fyrir sama tímabil árið áður. • Heildareignir félagsins í lok tímabilsins námu 15.601 millj. kr. en námu 17.327 millj. kr. í árslok 2006. • Eigið fé félagsins í lok tímabilsins nam 4.451 millj. kr. en þar af nam hlutafé 870 millj. kr. Eigið fé í árslok 2006 nam 4.073 millj. kr. • Eiginfjárhlutfall félagsins var 29% Endurskoðun Árshlutauppgjörið hefur verið kannað af endurskoðendum félagsins. Nánari upplýsingar veitir: Skarphéðinn Berg Steinarsson, forstjóri Fasteignafélagsins Stoða hf. í síma 660 0063 og Páll Benediktsson, forstöðumaður upplýsingasviðs Fasteignafélagsins Stoða hf. í síma 895 6066