Straumborg ehf., sem er með skráða víxlaflokkana SBORG 07 1019 og SBORG 08 0521 hefur nú sameinast dótturfélagi sínu, Norvest ehf., undir nafni Straumborgar. Norvest var 100% í eigu Straumborgar og hefur samruninn því engin áhrif á samstæðuuppgjör Straumborgar og óveruleg en jákvæð áhrif á öryggi skuldbindinga Straumborgar þar sem eignir Norvest eru nú í móðurfélaginu. Um var að ræða aðgerð til að einfalda skipulag Straumborgar.
- Samruna Straumborgar ehf. og Norvest ehf. er lokið
| Source: Straumborg ehf.