- Fjármálaeftirlitið samþykkir breytingu SPRON í hlutafélag


Fjármálaeftirlitið samþykkti í dag breytingu SPRON í hlutafélag á grundvelli
laga um fjármálafyrirtæki 161/2002. SPRON hefur þar með uppfyllt öll lögformleg
skilyrði breytingarinnar og telst því hlutafélag frá og með 1. apríl 2007. Í
kjölfar samþykkis Fjármálaeftirlitsins verður nú óskað eftir skráningu í OMX
Norrænu kauphöllinni Íslandi. 


Frekari upplýsingar veitir:
Guðmundur Hauksson
Sími: 550 1200

Um SPRON:

SPRON er alhliða fjármálafyrirtæki sem veitir viðskipta- og
fjárfestingarbankaþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og fagfjárfesta á
höfuðborgarsvæðinu. Bankinn er leiðandi á íslenskum fjármálamarkaði hvað ánægju
viðskiptavina varðar og leggur ríka áherslu á persónulega og góða þjónustu. 
Dótturfélög SPRON eru SPRON Verðbréf, SPRON Factoring, Netbankinn, Frjálsi
Fjárfestingarbankinn og Curron. SPRON rekur 9 útibú á höfuðborgarsvæðinu. Hjá
SPRON og dótturfélögum starfa um 250 manns.