- Samruni Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Rangæinga 1. janúar 2007


Þann 15.mars 2007 var undirritaður samningur um yfirfærslu allra eigna,
réttinda og skuldbindinga Hitaveitu Rangæinga til Orkuveitu Reykjavíkur frá og
með 01.janúar 2007 og var Hitaveita Rangæinga lögð niður og afskráð í
kjölfarið.  Hitaveitan var dótturfélag að fullu í eigu Orkuveitunnar, sem er
sameignarfyrirtæki sem starfar á grundvelli laga nr 139/2001. 

Meðal skuldbindinga sem Orkuveita Reykjavíkur yfirtók  eru skuldabréf Hitaveitu
Rangæinga skv. skuldabréfaflokki HVR 03 1, upphaflega að nafnverði 300 m.kr. 

Meðfylgjandi er afrit af  samningi þessum, ásamt sameiginlegum
efnahagsreikningi 1.janúar 2007. Allar eignir og skuldir framseljanda
yfirfærast á bókfærðu verði pr. 31.12.2006, og verður því hvorki til hagnaður
né tap við yfirfærsluna hjá framseljanda. 

Attachments

efnahagsreikn.hr  or 1.jan.2007.pdf aritun vegna samruna or og hr.pdf samningur um yfirfrslu hr til or.pdf