- Samruni BYRS við SPK samþykktur einróma


Fundur stofnfjáreigenda Byrs sparisjóðs, sem haldinn var í dag, samþykkti
einróma, með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins, samruna Byrs
sparisjóðs við Sparisjóð Kópavogs samkvæmt samrunaáætlun, sem stjórnir
sparisjóðanna undirrituðu 27. júní sl. 

BYR rekur nú sex útibú í Reykjavík, Garðabæ og Hafnarfirði og Sparisjóður
Kópavogs er með þrjú útibú í Kópavogi. Með sameiningu fjölgar möguleikum til
framþróunar og sóknar og til verður fyrirtæki með mjög sterka markaðsstöðu í
Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Starfsmannafjöldi í sameinuðum
sjóði verður um 200. 

Nánari upplýsingar veita sparisjóðsstjórar:

Ragnar Z Guðjónsson 575-4000

Magnús Ægir Magnússon 575-4000