SPRON-sjóðurinn ses. áformar sölu á að hámarki 4,8% í SPRON hf. við skráningu


Stjórn SPRON-sjóðsins ses. hefur samþykkt að selja að hámarki 4,8% hlut í SPRON
hf. á fyrsta viðskiptadegi SPRON hf.  23. október næstkomandi.  Markmiðið með
sölunni er að stuðla að virkri verðmyndun á markaði.  Þegar og ef sjóðurinn
hefur selt 60% af áætluðu magni eða í síðasta lagi kl. 14:00 á fyrsta
viðskiptadegi eiga tveir viðskiptavakar valrétt á að kaupa af honum hluti í
SPRON að fjárhæð 300 milljónir hvor á vegnu meðalverði þeirra hluta sem
SPRON-sjóðurinn hefur selt í viðskiptakerfi kauphallar fram að þeim tíma. 

Þegar og ef sjóðurinn selur hlutabréf í SPRON verður tilkynnt um viðskiptin um
leið og viðskiptunum lýkur eða í síðasta lagi í lok dags. 

SPRON-sjóðurinn ses er innherji í SPRON hf.  Engar innherjaupplýsingar eru
fyrirliggjandi eftir að tilkynning um óendurskoðað 8 mánaða uppgjör var birt
17. október síðastliðinn. 

Um SPRON-sjóðinn ses
SPRON-sjóðurinn ses er stærsti hluthafi í SPRON hf. og á nú 15% hlut. Stefna
sjóðsins er að beita sér ekki eða hafa áhrif á stjórn SPRON að öllu jöfnu og
langtímamarkmið sjóðsins er að eign hans nemi ekki meira en 5%. 


Frekari upplýsingar veitir: 

Jóna Ann Pétursdóttir
Framkvæmdastjóri SPRON-sjóðsins ses
S: 550 1771