- Endurskoðuð fjárhagsáætlun


Rekstrarafgangur 2,1 milljarður króna
Endurskoðuð fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2007

Endurskoðuð fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2007 var samþykkt á fundi
bæjarstjórnar 23. október sl. Niðurstöðutölur í rekstri og fjárfestingum eru í
samræmi við upphaflega fjárhagsáætlun. Gert er ráð fyrir að bæjarsjóður skili
um 2,1 milljarði króna í rekstrarafgang. 

Helstu frávik eru hækkun heildartekna um 480 milljónir króna, þar sem munar
mestu um hærri útsvarstekjur, en rekstrarniðurstaðan er engu að síður svipuð
vegna hækkunar gjalda, einkum á sviði fræðslumála, félagsþjónustu og samgangna.
Framlög til tónlistarskóla hafa verið hækkuð, ráðist í aðgerðaáætlun í
leikskólamálum til að ráða bót á manneklu og börn og unglingar í Kópavogi
ferðast gjaldfrjálst með Strætó bs. 

Fjárfestingar jukust á árinu umfram áætlun sem nemur u.þ.b. 2 milljörðum króna.
Kópavogsbær tók eignarnámi 864 ha lands í jörðinni Vatnsenda. Jafnframt var
aukið við framkvæmdir við íþróttamannvirki í bænum, stúkuna á Kópavogsvelli og
fjölnota íþrótta- og tónlistarhúsið Kórinn við Vallarkór, sem tekin voru í
notkun í ár, auk byggingarframkvæmda við Sundlaug Kópavogs. 

Endurskoðaða fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2007 má finna á heimasíðu
bæjarins, www.kopavogur.is (stjórnsýsla/fjárhagsáætlanir/ársskýrslur). 

Kópavogi, 25. október 2007

Attachments

frettatilkynning_fjarhagsaaetlun.pdf kop endurskou atlun 2007.pdf