Yfirtökutilboð FL Group hf.


Tilboðstímabili yfirtökutilboðs FL group hf. til hluthafa
Tryggingamiðstöðvarinnar hf. er lokið, en það rann út þann 28. nóvember
síðastliðinn. 

Samkvæmt tilkynningu FL Group hf. hafa 220 hluthafar samþykkt yfirtökutilboð
félagsins og hefur FL Group hf. tryggt 99,05% af heildarhlutafé
Tryggingamiðstöðvarinnar hf.