Source: Landsbanki Íslands hf.

Landsbankinn kynnir ársuppgjör 2007 þann 28. janúar

Landsbankinn mun birta rekstrarniðurstöðu á ársuppgjöri 2007 eftir lokun
markaða mánudaginn 28. janúar 2008. 

Kynningarfundur í Reykjavík 28. janúar
Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, bankastjórar Landsbankans, munu
 kynna afkomu bankans og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á Hótel Nordica
og hefst kl. 17.00. Kynningarefni frá fundinum verður birt á sama tíma á vef
Landsbankans. Vinsamlegast skráið ykkur á afkomukynningu í Reykjavík hér:
http://www.landsbanki.is/skraning/arsuppgjor2007 

Kynningarfundur í London 29. janúar
Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson bankastjórar Landsbankans, munu 
kynna afkomu  bankans og svara fyrirspurnum. Hægt verður að fylgjast með
útsendingu af kynningunni á vef Landsbankans www.landsbanki.com/ir en öll
fundargögn verða birt þar á sama tíma. 

Tími: 11:00 ( 11.00 UK og 12.00 CET)
Staðsetning: Merchant Taylors Hall, 30 Threadneedle Street, London, EC2R 8JB.
Skráning: Vegna strangra öryggisstaðla er nauðsynlegt að gestir skrái sig á
http://www.landsbanki.is/english/registration/q42007results 

Útsending og símafundur
Þeir sem vilja fylgjast með fundinum í London geta séð kynninguna í rauntíma á
www.landsbanki.com/ir. Einnig verður hægt að hlusta á fundinn símleiðis með því
að hringja 10 mínútum fyrir fund í síma  +44 (0) 1452 567 098. 

Fundargögn og upptaka
Hægt verður að nálgast fundargögn ásamt hljóð- og myndupptöku af kynningunni á
www.landsbanki.com/ir að fundi loknum. 

Nánari upplýsingar gefur fjárfestatengill Landsbankans, Tinna Molphy, í gegnum
tölvupóst, ir@landsbanki.is, eða síma 410-7200 / 861-1440.