HB Grandi áformar breytingar í rekstri fyrirtækisins á Akranesi til að bregðast við skerðingu aflamarks þorsks á fiskveiðiárinu 2007-2008. Stjórnendur HB Granda kynntu áformin á fundi með trúnaðarmönnum starfsfólks kl. 10 í dag og síðan á almennum starfsmannafundi sem hófst kl. 11 á Akranesi. Stjórn HB Granda tekur endanlega ákvörðun um breytingar á Akranesi á mánudaginn kemur, 28. janúar. Eftir skerðingu aflamarks í þorski hefur botnfiskvinnslan á Akranesi, sem áður snerist um þorsk, verið starfrækt með því að flytja á Akranes hluta þess ufsa, sem ella hefði verið unninn í Reykjavík. Slíkt fyrirkomulag er ekki hagkvæmt. Hins vegar rekur HB Grandi mikilvæga loðnuvinnslu á Akranesi á loðnuvertíð og er nú til skoðunar að efla þá starfsemi, meðal annars með því að gera mögulegt að heilfrysta þar loðnu. Því er nú stefnt að því að leggja af landvinnslu botnfisks í núverandi mynd og hefja á Akranesi sérvinnslu á léttsöltuðum, lausfrystum þorsk- og ufsaflökum í byrjun júní næstkomandi, með tilheyrandi fjárfestingum í tækjum og búnaði. Gert er ráð fyrir að starfsmenn í loðnuvinnslu sinni þessari sérvinnslu utan loðnuvertíðar. Þessar ráðstafanir kalla á að öllum starfsmönnum HB Granda í landvinnslunni á Akranesi verði sagt upp störfum 1. febrúar næstkomandi og síðan verði endurráðnir 20 starfsmenn í flakavinnslu og til vinnslu loðnuhrogna. Á launaskrá botnfiskvinnslu HB Granda á Akranesi eru nú 59 starfsmenn í 44 stöðugildum en verða 20 í jafnmörgum stöðugildum í júníbyrjun 2008. Starfsfólki verður sagt upp með fjögurra mánaða uppsagnarfresti, sem rennur því út í lok maímánaðar. Þeir sem lengri uppsagnarfrest hafa fá greitt í samræmi við það, en ekki verður krafist vinnuframlags af þeirra hálfu eftir mánaðamótin maí/júní. Stjórn HB Granda gerir sér grein fyrir því að þetta eru alvarleg tíðindi fyrir fjölda fólks, sem hefur starfað lengi hjá félaginu, og harmar að til þessa þurfi að koma. Rekstrarumhverfi landvinnslunnar er hins vegar þess eðlis að breytingar eru óhjákvæmilegar í starfseminni með tilheyrandi fækkun starfsfólks. Hópuppsagnir í fiskvinnslufyrirtækjum víðs vegar um land undanfarnar vikur og mánuði segja sína sögu um ástandið í atvinnugreininni. Stjórnendur HB Granda munu eftir megni liðsinna fólki við að komast í vinnu annars staðar.