FL Group hefur minnkað hlut sinn í þýska bankanum Commerzbank. Í ljósi lækkunar hlutabréfa í Commerzbank undanfarna daga hefur FL Group ákveðið að upplýsa um núverandi eignarhlut sinn í bankanum sem er um 1,15% (18. janúar 2008). Þann 15. janúar síðastliðinn tilkynnti FL Group um sölu á hlut í bankanum og nam eignarhluturinn þá um 2,1% og var hann 2,9% um áramót. Sala hlutar FL Group í bankanum er hluti af reglulegu mati félagsins á eignum sem ekki falla undir kjarnafjárfestingar en eignarhlutur í Commerzbank fellur undir Capital markets svið félagsins. Um FL Group FL Group er alþjóðlegt fjárfestingafélag með áherslu á þrjú fjárfestingasvið, FIG, Private Equity og Capital Markets. FIG hefur umsjón með fjárfestingum félagsins í fjármálafyrirtækjum og tryggingafélögum. Private Equity heldur utan um óskráðar eignir ásamt skráðum eignum sem falla að fjárfestingarstefnu félagsins. Capital markets svið félagsins hefur umsjón með markaðsviðskiptum sem lúta að skammtíma fjárfestingum sem og framkvæmd afleiðu- og verðbréfaviðskipta tengdum eignasafni félagsins. Kjarnafjárfestingar FL Group eru m.a. í Glitni banka, Tryggingamiðstöðinni og Landic property. Höfuðstöðvar FL Group eru í Reykjavík en félagið er einnig með skrifstofur í Lundúnum. FL Group fjárfestir í félögum um allan heim en leggur sérstaka áherslu á fjárfestingar í Evrópu. FL Group er skráð á OMX Nordic Exchange í Reykjavík (OMX: FL) og hluthafar félagsins eru rúmlega 4.000 talsins. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu FL Group, www.flgroup.is. Frekari upplýsingar veitir: Halldór Kristmannsson Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs Sími: 591 4400 / 669 4476 Póstfang: halldor@flgroup.is