Landsbanki Íslands hf. hefur samið við Kaupþing banka hf. um viðskiptavakt með hlutabréf í Landsbanka Íslands hf. fyrir eigin reikning Kaupþings banka hf. Samningurinn felur í sér að sett verða fram daglega kaup- og sölutilboð í hlutabréf Landsbanka Íslands hf. í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Tilboð eru sett fram í viðskiptakerfi OMX Nordic Exchange á Íslandi, áður en markaður er opnaður og skulu ekki gilda lengur en innan dagsins. Skilmálar viðskiptavakasamningsins eru eftirfarandi: Kaupþing banki hf. skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Landsbanka Íslands hf. að lágmarki 1.000.000 hlutir og skulu tilboð vera á því gengi sem Kaupþing banki hf. ákveður í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,0% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3,0%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem Kaupþing banki hf. skuldbindur sig til að vera þátttakandi að dag hvern skal vera kr. 400.000.000,- að markaðsverði. Kaupþing banki hf. mun hefja viðskiptavaktina þann 21. janúar 2008. Nánari upplýsingar veitir Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs, s: 444-6112 eða ir@kaupthing.com
- Landsbanki Íslands hf. semur við Kaupþing banka hf. um viðskiptavakt.
| Source: Kaupþing banki hf.