Leiðrétting - Framboð til stjórnar á aðalfundi félagsins 25. janúar 2008 - Frétt send 2008-01-18 18:08:38 CET


Leiðrétting: 
Guðmundur Jóh. Jónsson er framkvæmdastjóri Varðar tryggingar hf., sem hét áður
Vörður Íslandstrygging. 
Benedikt Jóhannesson situr ekki lengur í stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf.


Eftirtaldir einstaklingar hafa gefið kost á sér til setu í stjórn Nýherja, sem
kjörin verður á aðalfundi 26. janúar næstkomandi, en þeir eiga allir setu í
fráfarandi stjórn. 

------------

STJÓRN

Árni Vilhjálmsson, kt: 110532-3509, Hlyngerði 10, 108 Reykjavík.           

Störf: 
Núverandi störf eru stjórnarformennska og stjórnarseta í hlutafélögunum HB
Grandi hf., Hampiðjan hf., Hvalur hf., Fiskveiðahlutafélagið Venus hf., Nýherji
hf. o.fl. 
Gegndi starfi prófessors við Viðskiptadeild Háskóla Íslands auk ýmissa annarra
starfa og verkefna. 

Menntun:
Cand.Econ. frá Viðskiptadeild Háskóla Íslands og AM í hagfræði frá Harvard
háskóla. 

Eign og tengsl:
Hlutafjáreign stjórnarmanns: kr. 330.000
Engin hagsmunatengsl eru við viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila.
Stjórnarformaður í Vogun hf. sem á 28,8% hlutafjár í Nýherja hf. 
                                                             

Benedikt Jóhannesson, kt. 040555-2699, Selvogsgrunni 27, 104 Reykjavík.
               
Störf: 
Núverandi starf er framkvæmdastjóri Talnakönnunar hf. og Heims hf., auk
stjórnarformennsku og stjórnarsetu í hlutafélögum svo sem Nýherja hf.,Íslensku
óperunni o.fl. Fyrri stjórnarstörf og formennska í Hf. Eimskipafélagi Íslands,
Skeljungi hf., Myllunni hf., Burðarási, Sjóvá-Almennum tryggingum hf.  o. fl. 

Menntun:  
Ph.D í tölfræði og stærðfræði , MS í Tölfræði , BS í stærðfræði og hagfræði.

Eign og tengsl:
Hlutafjáreign stjórnarmanns: kr. 27.388.240
Engin hagsmunatengsl eru við stóra viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila.
Stjórnarmaður í Áning-fjárfestingar ehf. sem á 13,9% hlutafjár í Nýherja hf. 


Guðmundur Jóh. Jónsson, kt: 041159 2439, Álfhólsvegi 101, 200 Kópavogur.

Störf: 
Framkvæmdastjóri Varðar tryggingar hf., núverandi stjórnarmaður í Nýherja.

Menntun: 
Viðskiptafræðingur frá Seattle University, MBA frá Edinborgarháskóla.

Eign og tengsl:
Hlutafjáreign stjórnarmanns: kr. 476.940
Engin hagsmunatengsl eru við viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila.            

VARASTJÓRN

Örn D. Jónsson, kt: 090654-2179, Hávallagötu 29, 101 Reykjavík 

Störf:
Prófessor í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum við Viðskiptadeild Háskóla Íslands,
varamaður í stjórn Nýherja hf. auk þess að hafa með höndum ýmis önnur störf og
verkefni. 

Menntun: 
Ph.d frá háskólanum í Roskilde.

Eign og tengsl:
Hlutafjáreign stjórnarmanns: kr. 267.000
Engin hagsmunatengsl eru við viðskiptaaðila eða samkeppnisaðila.