Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's Investor Service tilkynnti í dag að Aa3 lánshæfiseinkunn Glitnis og fjárhagslegur styrkleiki C væru til athugunar til mögulegrar lækkunar. Samhliða var skammtímaeinkunn bankans P-1 staðfest. Samkvæmt tilkynningunni eru lánshæfiseinkunnir stóru viðskiptabankanna þriggja nú til athugunar hjá Moody's. Tilkynning Moody's er í meðfylgjandi viðhengi. Frekari upplýsingar veita: Ingvar H. Ragnarsson, Framkvæmdastjóri fjárstýringar, s: 440 4665, farsími: 844 4665, tölvupóstur: ingvar.ragnarsson@glitnir.is . Vala Pálsdóttir, Forstöðumaður fjárfestatengsla, S: 440 4989, farsími: 844:4989 tölvupóstur: vala.palsdottir@glitnir.is . Bjørn Richard Johansen, framkvæmdastjóri samskiptasviðs, farsími +47-47 800 100, tölvupóstur: brj@glitnir.no .
Moody's breytir horfum um lánshæfiseinkunn Glitnis
| Source: Glitnir banki hf.